Fjórir gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina, en alls voru bókuð 62 mál í kerfum lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Tilkynnt var um stórfellda líkamsárás í Kópavogi, hverfi 201, og voru tveir einstaklingar handteknir í málinu sem er í rannsókn að sögn lögreglu.
Þeir voru vistaðir í fangaklefa en árásarþoli var fluttur á slysadeild. Engar frekari upplýsingar um málið koma fram í skeyti lögreglu.
Í vesturbænum fékk lögregla tilkynningu um að lúðrar væru í gangi sem hljómuðu eins og þokulúðrar. Komst lögregla að því að bílar sem voru við götusópum í hverfinu væru hugsanlegir sökudólgar.
Í umdæmi lögreglustöðvar 2 fékk lögregla svo tilkynningu um menn sem voru að reyna að brjótast inn í íbúð. Þegar betur var að gáð reyndust mennirnir vera að hjálpa húsráðanda að komast inn til sín.