Lögregla fann tugi árásarriffla í bifreið á Spáni
Lögreglan í Katalóníu fann tuttugu árásarriffla af gerðinni AK-74 í Porsche Cayenne bifreið við AP7 hraðbrautina nálægt Figueres á Spáni aðfaranótt miðvikudags. Maður sem var inni í bílnum flúði af vettvangi þegar hann varð var við lögreglu og hefur enn ekki fundist.
Samkvæmt spænskum miðlum fann lögreglan tvo poka í skotti bílsins með AK-74 Kalashnikov árásarrifflum, sem er nútímalegri útgáfa af hinum alræmda AK-47 og getur bæði verið hálfsjálfvirkur eða fullsjálfvirkur. Vopnin voru flutt á lögreglustöð og tæknideild rannsakar nú hvaðan þau koma.
AuglýsingAtvikið átti sér stað um klukkan tvö um nóttina á hvíldarsvæði við suðurleið AP7 hraðbrautarinnar. Þegar umferðarlögregla nálgaðist Porsche bifreiðina tók maðurinn á rás og skildi bifreiðina eftir opna. Samkvæmt lögreglu fundust ýmis skjöl og gögn inni í bílnum sem gætu hjálpað til við að bera kennsl á manninn.
Rannsóknardeild lögreglunnar í Katalóníu hefur hafið umfangsmikla rannsókn á málinu. Verið er að kanna hverjir eigi vopnin og hvert þau hafi átt að fara.
Lögregluyfirvöld á Spáni hafa á síðustu árum varað við aukningu slíkra vopna í Katalóníu, sérstaklega í Barcelona og Girona héraði. Slík vopn eru oft tengd við skipulagða glæpastarfsemi.
Mikil aukning í skipulagðri glæpastarfsemi hefur verið á Girona svæðinu, sem er nálægt landamærum Frakklands.
Auglýsing