Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar leita að flugmanni á svifvæng sem varð viðskila við samferðamenn sína.Fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi að um kl. 11:00 í morgun hafi lögregla fengið tilkynningu um flugslys sunnan Mýrdalsjökuls. Einum manni á svifvæng hafi hlekkst þar á og hann orðið viðskila við samferðamenn. Björgunaraðgerðir standa yfir.
Leita flugmanns sunnan við Mýrdalsjökul