Borgarráð hefur samþykkt tillögur starfshópa til að bæta aðstöðu íþróttafélaganna Ármanns og Fjölnis í Reykjavík. Þá hefur umboð starfshópanna verið endurnýjað og munu þeir því rýna aðstöðumál íþróttafélaganna til framtíðar.
Greint er frá þessu á vef Reykjavíkur.
Íþróttastjóri Ármanns segir jákvætt að samtalið um aðstöðumálin muni halda áfram, en að betur megi ef duga skuli. Innanhússíþróttaaðstaða fyrir börn í Laugardalnum sé nær engin.
„Það halda allir að Laugardalurinn sé Mekka íþróttanna á Íslandi og hann er það vissulega fyrir afreksíþróttir. En fyrir börnin í Laugardal er Laugardalurinn ekki neitt Mekka. Krakkarnir eru afgangsstærð í íþróttunum hér í Laugardalnum. Við lendum alltaf undir,“ segir Eiður Ottó Bjarnason, íþróttastjóri Ármanns.
Hreyfing sé komið á málin þó ekki hafi komist lengra að sinni. Vinna með starfshópnum haldi áfram.
„Við vonumst til að það verði bara byrjað aftur fljótlega, á næstu vikum, að endurnýja þetta umboð. Við höldum áfram þeirri vinnu og horfum til framtíðar. Hvernig við getum byggt upp inniíþróttastarf í Laugardalnum. Við teljum að við séum bara í hálfleik.“
Viðburðir í Laugardalshöll bitna á íþróttaiðkun barna
Ármann er fjölgreinafélag sem býður upp á fjölbreyttar íþróttir fyrir iðkendur, eins og fimleika, frjálsar íþróttir, kraftlyftingar, sund og körfubolta. Félagið hefur takmarkaða aðstöðu fyrir innanhússíþróttir og aðsetur í Laugardalshöll fyrir æfingatíma.
Reglulega detta æfingar í íþróttahúsinu niður sökum viðburðahalds.
„Núna fimmtudag, föstudag og laugardag er Laugardalshöll lokuð fyrir Samfés. Ég held það séu tæplega tólf flokkar sem við höfum þurft að fella niður æfingar hjá þessa þrjá daga. Þetta eru flokkar sem eru enn að keppa á mótum hjá okkur og við höfum í engin önnur hús að vernda,“ segir Eiður Ottó.
Íþróttafélagið hefur átt í viðræðum við borgina undanfarna mánuði.
„Það er alveg ljóst að í Laugardalnum er margþættur vandi. Það vantar íþróttahús við alla skólana í hverfinu. Inniíþróttaaðstaðan fyrir íþróttafélögin hérna í hverfinu er engin fyrir utan Laugardalshöll,“ segir Eiður Ottó.
Þrýst hafi verið á að byggt verði við þau íþróttahús sem fyrir eru.
„Íþróttahúsin sem eru í hverfinu eru barn síns tíma og eru í rauninni ekki stimpluð sem íþróttahús lengur heldur hreyfirými. Þau eru bara orðin lúin og gömul. Það er það sem við vorum að reyna að fá fram í þessari vinnu með borginni. Við komumst ekki þangað núna, en það er komið skrið á ýmsa hluti.“
Í fundargerð hjá borginni kemur fram að til standi að byggja við hreyfirými Langholtsskóla.
„Vonandi verður það bara nægilega stórt, ekki svona hreyfirými eins og er nú þegar fyrir. Þannig að vonandi verður stækkun þar, á íþróttahúsinu, sem mun nýtast félögunum vel,“ segir Eiður Ottó.
Tillögur fyrir um 37,5 milljónir á ári
Tillögur starfshópanna voru samþykktar á fundi borgarráðs á fimmtudag. Þær sem snúa að Ármanni eru kostnaðarmetnar á 36,5 milljónir króna á ári, auk þess að lögð er til ein tillaga sem felur í sér eins skiptis kostnað upp á eina milljón króna.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun vegna tillögunnar:
„Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja framlagðar tillögur og telja mikilvægt að með þeim sé verið að bæta aðstöðu Glímufélagsins Ármanns og mæta þeirri óvissu sem ríkt hefur um starfsemi félagsins um langt skeið. Ármann gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki í Laugardal og ljóst að þörf er á frekari úrbótum á aðstöðu félagsins, sérstaklega í Laugardalshöll,“ segir í bókuninni.
Bent er á að óvissa sé um heildarkostnað og framtíðarskuldbindingar borgarinnar. Mikilvægt sé að frekari ákvarðanir um uppbyggingu og samninga verði teknar á grundvelli skýrs kostnaðarmats og fjárhagslegs svigrúms borgarinnar.
Ýmislegar tillögur
Tillögur starfshóps um aðstöðumál Ármanns snúa meðal annars að bættri aðstöðu og aðgengi, auknu geymslurými, bættum merkingum, endurskilgreindum æfingatímabilum og möguleikum á auglýsingasölu.
Er í skýrslu starfshópsins lagt til að sviðið í gömlu Laugardalshöll verði nýtt fyrir styrktar- og upphitunarþjálfun. Íþrótta- og sýningahöllin hf., sem rekur Laugardalshöll, beri ábyrgð á að gera þá aðstöðu aftur tilbúna um leið og viðburðahaldi í gömlu höllinni sé lokið.
Þá er einnig meðal tillagna að bæta útfærslu varðandi notkun á klukkum og skotklukkum á æfingum meistaraflokka í körfubolta og að merki Ármanns verði sett á glugga í anddyri Laugardalshallar.
Lagt er til að Reykjavíkurborg gangi frá samningi við ÍSH um að stytta sumarlokun svo aðgangur að Laugardalshöll sé tryggður í maí, júní, hálfan júlí og ágúst. Reykjavíkurborg greiðir fyrir aukakostnað vegna þessa.
Ármanni verði tryggt aukið aðgengi að fundarsölum og félagsaðstöðu í íþróttahúsinu, auk þess sem styrktaraðstöðu stendur til að bæta.
Tillögurnar eru fjöldamargar en hægt er að lesa þær í skýrslu starfshópsins. Sumar þeirra er þegar byrjað að innleiða.
Auka fyrirsjáanleika vegna viðburðahalds
Tillögur starfshópanna snúa meðal annars að því að auka fyrirsjáanleika í kringum viðburði í íþróttahúsinu. Reykjavíkurborg eigi að tryggja að viðburðadagatal fyrir Laugardalshöll verði gefið út fyrir 15. júlí fyrir komandi rekstrarár, sem hefst 15. ágúst.
Þá eigi íþróttafélög sem eigi æfingatíma í Laugardalshöll að fá greiðslur vegna óþæginda þegar æfingar falla niður vegna viðburðahalds.
„Greiðslur yrðu ákvarðaðar með hliðsjón af notkun hverju sinni og tímaúthlutun ÍBR. Allar bætur sem yrðu greiddar hverfisfélögunum yrðu sérstaklega aðskildar í rekstri félaga og skylt að þeim yrði alfarið ráðstafað í barna- og ungmennastarfsemi þeirra íþróttagreina sem missa æfingatíma,“ segir í skýrslunni.
Lagt er til að hver íþróttatími sem felldur er niður verði bættur um 20 þúsund krónur fyrir hverja klukkustund.