Kosningaspá Vísis sem Baldur Héðinsson stærðfræðingur gerir hefur verið uppfærð eftir að ný könnun Maskínu á fylgi framboða til borgarstjórnar var birt í gær.
Sjálfstæðisflokknum hélt áfram að vaxa ásmegin á sama tíma og enn frekar fjaraði undan Samfylkingunni í könnuninni. Samfylkingin hefur nú tapað um átta prósentustigum frá því í könnun fyrirtækisins í janúar.
Þegar tekið hefur verið tillit til nýju könnunarinnar nálgast Sjálfstæðisflokkurinn tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna í kosningaspánni. Munurinn var hálft prósentustig Samfylkingunni í vil þegar fyrsta kosningaspáin var birt 7. apríl. Sjálfstæðisflokkurinn nálgast þrjátíu prósenta fylgi en Samfylkingin er komin niður fyrir tuttugu prósentin.
Nú eru meiri líkur en minni á að Sjálfstæðisflokkurinn nái inn sjö mönnum og sá áttundi, Bjarni Fritzson á tæplega helmingslíkur á að ná kjöri samkvæmt spánni.
Samfylkingin, sem stefndi á sex borgarfulltrúa fyrir mánuði, á nú orðið í hættu á að missa fimmta manninn. Stein Olav Romslo mælist nú með sextíu prósent líkur á að ná inn. Líkur hans voru 95 prósent í fyrstu útgáfu kosningaspárinnar fyrir mánuði.