Komin á eftir­laun og með skot­heldar leiðir til að ferðast ó­dýrt um Ítalíu - Vísir

Komin á eftir­laun og með skot­heldar leiðir til að ferðast ó­dýrt um Ítalíu - Vísir

Komin á eftir­laun og með skot­heldar leiðir til að ferðast ó­dýrt um Ítalíu - Vísir

Vala Matt heimsótti Unu og Ólaf í nýjasta þætti Íslands í dag og ræddi við þau um ferðalög þeirra um Ítalíu, skotheld trix til að ferðast um landið og gæða sér ódýrt á dýrindis ítölskum mat.

Þið hjónin voruð fararstjórar á Ítalíu í svo mörg ár. Hvar voruð þið helst?

„Fyrstu árin vorum við náttúrulega bara ár eftir ár á Rimini og Riccione og þar var mikill fjöldi Íslendinga sem kom á sumrin. Það var svona strandstaður en dásamlegur því þar var allt, þar var fín aðstaða, frábær strönd og besti barnastaður sem hægt er að vera á,“ segir Una.

Ein vinsælasta strönd Ítalíu er við Rimini.Getty

Maturinn þar sé líka einn sá besti á Ítalíu að mati Unu.

„Eftir því sem ég ferðast víðar um Ítalíu verð ég alltaf hrifnari af því hvað fiskréttirnir eru góðir á Riccione. En svo er bara hvert hérað, eins og þú veist, með sitt þannig að maður getur ekki alltaf fundið það sem er í uppáhaldi nema vera á rétta staðnum,“ segir hún.

Á tímabili fór Ólafur vikulega til Rómar með hópa og Feneyja, Flórens og San Marínó og víðar. Síðustu ár hafa þau síðan verið með sérferðir um alla Ítalíu

„Þetta er ótrúlegur fjöldi farþega sem við erum búin að vera með á Ítalíu. Maður verður alltaf meira og meira hrifinn, segi ég, af Ítalíu, eftir því sem maður er þar meira.“

Fólk átti sig ekki á því hve víða er hægt að fara

„Ég hafði atvinnu af því að ferðast sem flugfreyja hjá Arnarflugi og Atlanta og fór um allan heim og var víða langdvölum. Eftir því sem ég fór víðar, þeim mun fallegri varð Ítalía.  Ítalía er ennþá alltaf bara besti staður í heimi fyrir mig, að öllu leyti,“ segir Una.

Maður þurfi ekki alltaf að vera á dýrustu ferðamannastöðunum til þess að njóta á Ítalíu að sögn Unu. Fólk átti sig ekki endilega alltaf á því.

Rúmlega 20 milljónir ferðamanna heimsækja feneyjar á hverju ári.Vísir/Getty

„Það fara allir til Rómar, Feneyja og Flórens þar sem er allt dýrast af því þar eru allir ferðamennirnir. En það er hægt að fara svo víða, það er svo mikið að gera og mikið af góðum mat,“ segir Una.

Það sé mikill misskilningur að ekkert sé að fá á Ítalíu nema pizzur og pasta. Fátt slái út fiskrétti á Ítalíu og ótrúlegt úrval af ferskum fiski í ítölskum fiskbúðum.

Ferðast utan háannatíma og nýta lestarnar

„Við höfum sérstaklega í seinni tíð bara ferðast mjög mikið bara með lestum. Það er svo þægilegt og afslappandi. Ég segi alltaf að þú getur farið alveg í sex, jafnvel sjö tíma lestarferð og það er álíka eins og að taka klukkutíma flug,“ segir Una um lestirnar.

Bið, endalaus biðAP/Luca Bruno

„Þetta vesen út á flugvöll og til baka, standa í röð við að tékka sig inn, standa í röð til að fara í gegnum öryggiseftirlit, standa í röð til að komast um borð, þá ertu kominn með þennan tíma,“ bætir hún við.

„Á sama tíma geturðu setið í stórum, þægilegum sætum í lest, látið fara rosalega vel um þig, nýtur útsýnisins og ert bara kominn. Borðað góðan mat og tekið með þér nesti og vínflösku og guð veit ekki hvað.“

Mikill sparnaður við að fara utan háannatíma

Eftir að hjónin hættu að vera fararstjórar í ferðum eru þau farin að ferðast sjálf um landið. Una er orðin mikill sérfræðingur í að skipuleggja ódýr ferðalög um Ítalíu.

„Ég er náttúrulega búin að vera í þessum ferðabransa alla ævi, þannig að auðvitað lærir maður það. En við til dæmis erum svolítið á ferðinni þegar það er ekki háannatíminn,“ segir Una.

Stærsta ferðamannatímabilið í Ítalíu sé í kringum Ferragosto, sem rekur uppruna sinn til Feriae Augusi sem Ágústus keisari gerði að opinberum frídegi, en sá frídagur er 15. ágúst hvert ár. Allir Ítalir fari þá í frí og þess vegna sé dýrast að ferðast um Ítalíu frá 5. ágúst til 25. ágúst að sögn Unu.

„Þá eru hæstu verðin alls staðar um alla Ítalíu því það eru allir Ítalir í fríi. Og þá fer maður auðvitað aldrei á þeim tíma og þá er allt troðið af fólki. Maður fer utan þess tíma, helst á vorin og haustin, og svo er auðvitað þetta með að kaupa flugið nógu snemma.“

Fyrirvarinn mikilvægur

Mikilvægt sé að kaupa miða með góðum fyrirvara, líka í lestirnar.

„Það er alveg þess virði að kaupa sér fyrsta klassa miða, vera tímanlega og láta fara vel um sig. Það er svona tíu sinnum þægilegra en að fljúga, fyrirgefðu. En við verðum náttúrulega alltaf að fljúga til að fara yfir hafið,“ segir Una.

Þau hjónin hafi flogið mikið með ítalska flugfélaginu Neos sem lendir í Verona í hjarta Norður-Ítalíu.

„Það er sko tveggja klukkustunda lestarferð bara í allar áttir, suður, austur, norður, vestur og svo geturðu farið til Rómar á fjórum tímum. Svo geturðu tekið flug frá Verona, alla leið niður í Puglia-hérað sem er hællinn á Ítalíu og þú getur flogið yfir til Sikileyjar frá Verona,“ segir Una.

Tvær reglur sem maður læri fljótt

Maður þurfi ekki alltaf að vera í stórborgunum enda mikið af æðislegum smáþorpum um alla Ítalíu að sögn Unu. 

„Þar er líka oft miklu ódýrara að borða, miklu ódýrara að vera að öllu leyti af því þangað koma Ítalir. Í Rimini og Riccione eru yfir níutíu prósent af ferðamönnunum Ítalir og það heldur verðinu niðri. Veitingahúsin bjóða ekki Ítölum upp á einhver túristaverð á þessum stöðum þar sem Ítalirnir ferðast sjálfir,“ segir Una.

Hún nefnir sem dæmi íslensk hjón sem eru að ferðast á Sardiníu en þau séu nánast einu erlendu ferðamennirnir þar og fyrir vikið sé gisting miklu ódýrari þar. 

Una kann að ferðast ódýrt.

Una segir tvær reglur á Ítalíu sem maður læri fljótt.

„Það er í fyrsta lagi að fara út af aðalgötunni, beygja fyrir hornið og fara á veitingahúsin í götunni á bak við eða í hliðargöttunni. Ég segi alltaf við ferðamennina mína að sá sem vill gera vel og bjóða upp á góðan mat þarf ekkert að hafa fyrir því ef hann er á Aðalgötunni því þar labba allir og þeir hoppa inn þar sem er þægilegast. En hann þarf að hafa fyrir því að fá þá út í hliðargöturnar og þá leggur hann meira í matseldina,“ segir Una.

„Eins vil ég segja: fáið ykkur bara vín hússins. Þau eru undantekningarlaust góð vín ef þú ert á góðum stað. Sá sem rekur veitingastað vill gera vel við gestina sína, það vilja Ítalir, er búinn að velja nokkur hundruð lítra. Þeir fara á haustin, makka hjá nokkrum vínframleiðendum og kaupa hjá þeim mörg hundruð lítra til þess að eiga yfir sumarið af því þeir bjóða ekki upp á eitthvert rusl,“ bætir hún við.

Besta leiðin til að fara mörgum sinnum á ári til Ítalíu er að fá ódýrasta verðið bæði fyrir gistingu og mat og þá þarf að bóka með mjög góðum fyrirvara.

„Þetta bóka ég sko í október-nóvember ef ég ætla,“ segir Una. Hún bóki þá bæði flug og lestarferð með hraðlest.

#eftirlaun #komin #leiðir #með #skotheldar

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262927502d/komin-a-eftir-laun-og-med-skot-heldar-leidir-til-ad-ferdast-o-dyrt-um-italiu

📰 Aðrar fréttir

Sigmundur Ernir skrifar: Það er stórt orð stórveldi
📅 28.11.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Það er stórt orð stórveldi
Það er stórt orð Hákot, eins og löngum hefur verið rætt og ritað, og það sama verður líka sagt um stórveldi, enda hefur okkur staðið ógn af því fyrirb...
Yfirbuguðu mann vopnaðan hnífi - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
Yfirbuguðu mann vopnaðan hnífi - Vísir
Sigrún Jónasdóttir lögreglufulltrúi sagði frá því í samtali við fréttastofu að betur hefði farið en á horfðist en hún greindi einnig frá því að útkall...
Nauðsynlegt fyrir skipverja á Jökli ÞH að ræða slysið
📅 28.11.2026 👁️ 0
Nauðsynlegt fyrir skipverja á Jökli ÞH að ræða slysið
Rætt var um öryggismál á sjó í Vikulokunum í dag og eftirmála þess að þrír menn fórust og 14 var bjargað þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk austur af la...
Hundruð Ís­lendinga að­stoða glæpa­menn við netsvik - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
Hundruð Ís­lendinga að­stoða glæpa­menn við netsvik - Vísir
Fyrir tveimur árum síðan voru tilkynningar um netbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 153 talsins en í ár eru þau 2359 talsins og þannig fimmtán...
Læknar án landamæra segja Ísraelsher hafa vitað af staðsetningu heilsugæslu
📅 28.11.2026 👁️ 0
Læknar án landamæra segja Ísraelsher hafa vitað af staðsetningu heilsugæslu
Tveir starfsmenn hjálparsamtakanna Lækna á landamæra voru drepnir í loftárás Ísraelshers á heilsugæslu samtakanna í Gazaborg. Samtökin segja herinn ha...
Tröllateiknarinn Pilkington fagnar 50 ára starfsafmæli
📅 28.11.2026 👁️ 0
Tröllateiknarinn Pilkington fagnar 50 ára starfsafmæli
Teikningar Brians Pilkingtons birtast í hugum heilu kynslóðanna þegar minnst er á tröll, Grýlu, Leppalúða og gömlu jólasveinana.Brúður gömlu jólasvein...
Free Starlink Wi-Fi launches on flights to the Canary Islands
📅 28.11.2026 👁️ 1
Free Starlink Wi-Fi launches on flights to the Canary Islands
Iberia Express has begun rolling out free high-speed Wi-Fi powered by Starlink on its aircraft, bringing improved internet access to passengers travel...
Óvíst hvort hægt verður að nálgast skipsflakið á hafsbotni
📅 28.11.2026 👁️ 0
Óvíst hvort hægt verður að nálgast skipsflakið á hafsbotni
Lögreglan og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka atburði miðvikudagsins 25. nóvember, þegar Jökull ÞH sökk austur af landi. Gagnasöfnun er hafin og...
L'Incontro: twelve years of Italian cooking and wood-fired pizza in Playa Paraíso
📅 28.11.2026 👁️ 1
L'Incontro: twelve years of Italian cooking and wood-fired pizza in Playa Paraíso
In an area where many restaurants have changed hands, L'Incontro, an Italian restaurant in Playa Paraíso in the municipality of Adeje, has had the sam...
Fjórða björgunarþyrlan á Akureyri gæti tekið allt að þrjú ár – kanna nú leigu á bráðabirgðaþyrlu
📅 28.11.2026 👁️ 2
Fjórða björgunarþyrlan á Akureyri gæti tekið allt að þrjú ár – kanna nú leigu á bráðabirgðaþyrlu
Fjórða björgunarþyrlan á Akureyri gæti tekið allt að þrjú ár – kanna nú leigu á bráðabirgðaþyrlu Fréttin28. nóvember 2026Innlent, ÖryggismálLeave a Co...
Sögulegur ósigur Verkamannaflokksins í Victoria – tólf ára stjórn á enda
📅 28.11.2026 👁️ 1
Sögulegur ósigur Verkamannaflokksins í Victoria – tólf ára stjórn á enda
Sögulegur ósigur Verkamannaflokksins í Victoria – tólf ára stjórn á enda Fréttin28. nóvember 2026Erlent, KosningarLeave a Comment Mikil valdaskipti bl...
TF-GNÁ væntan­leg úr við­gerð en kominn tími á TF-GRÓ - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
TF-GNÁ væntan­leg úr við­gerð en kominn tími á TF-GRÓ - Vísir
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. TF-GRÓ var eina þyrla Landhelgisgæslunnar sem v...
Gular veðurviðvaranir taka gildi í kvöld – stormur, hríð og erfið akstursskilyrði
📅 28.11.2026 👁️ 1
Gular veðurviðvaranir taka gildi í kvöld – stormur, hríð og erfið akstursskilyrði
Gular veðurviðvaranir taka gildi í kvöld – stormur, hríð og erfið akstursskilyrði Fréttin28. nóvember 2026Innlent, VeðurLeave a Comment Veður fer vers...
Bros, tár og stolt við heim­komuna - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
Bros, tár og stolt við heim­komuna - Vísir
Móttökurnar voru tilfinningaríkar þegar fjölskyldur, vinir og bakhjarlar tóku á móti liðinu með útbreiddan faðminn. Það má segja að tilfinningarnar ha...
Sálfræðiaðstoð við lögreglumenn skert um 40 prósent vegna fjárskorts
📅 28.11.2026 👁️ 2
Sálfræðiaðstoð við lögreglumenn skert um 40 prósent vegna fjárskorts
Sálfræðiaðstoð við lögreglumenn skert um 40 prósent vegna fjárskorts Fréttin28. nóvember 2026InnlentLeave a Comment Embætti ríkislögreglustjóra hefur ...
Fyrrverandi sigurvegari Miss Trans Brasil segir Jesú hafa gefið sér nýtt líf
📅 28.11.2026 👁️ 2
Fyrrverandi sigurvegari Miss Trans Brasil segir Jesú hafa gefið sér nýtt líf
Fyrrverandi sigurvegari Miss Trans Brasil segir Jesú hafa gefið sér nýtt líf Fréttin28. nóvember 2026Erlent, Transmál, TrúmálLeave a Comment Brasilíum...
Jarðskjálfti að stærðinni 3,4 í Reykjadal
📅 28.11.2026 👁️ 0
Jarðskjálfti að stærðinni 3,4 í Reykjadal
Jarðskjálfti að stærðinni 3,4 varð í Reykjadal klukkan 10:51. Að sögn Veðurstofu hefur mjög lítil eftirskjálftavirkni fylgt eftir og hafa engar tilkyn...
Argentina's bid to stop Falklands oil drilling rejected
📅 28.11.2026 👁️ 0
Argentina's bid to stop Falklands oil drilling rejected
A joint venture between UK-Israeli companies is set to start exploring for oil and gas, but Argentina sought to block it as part of its claim to sover...
Woman, 21, dies in Hednesford crash following police pursuit
📅 28.11.2026 👁️ 1
Woman, 21, dies in Hednesford crash following police pursuit
The crash happened on Friday just after 23:00 GMT on Rugeley Road in Hednesford.
„Þið vanvirðið missinn með hatri“ - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
„Þið vanvirðið missinn með hatri“ - Vísir
Watson skrifaði í það minnsta tvenn ansi löng ummæli við eigin færslu en hið fyrra snýr að hatursfullum ummælum sem hann sagðist ekki ætla að fjarlægj...
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Áttfalt hærri skattur í skemmtiferðaskipi en á hóteli fyrir fjögurra manna fjölskyldu
📅 28.11.2026 👁️ 2
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Áttfalt hærri skattur í skemmtiferðaskipi en á hóteli fyrir fjögurra manna fjölskyldu
Það er grundvallaratriði varðandi rekstur lítilla búða úti á landi, t.d. bókabúða, að fá ferðamannastrauminn, ekki síst frá skemmtiferðaskipunum, yfir...
Ekkert ferðaveður á Tröllaskaga vegna hríðar í kvöld og nótt
📅 28.11.2026 👁️ 2
Ekkert ferðaveður á Tröllaskaga vegna hríðar í kvöld og nótt
Gular og appelsínugular viðvaranir vegna sunnanstorms og hríðar taka gildi víða um land síðdegis og í kvöld. Fyrst á Suðausturlandi og svo á Norðaustu...
Von á þyrlu úr við­gerð en kominn tími á TF-GRÓ - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Von á þyrlu úr við­gerð en kominn tími á TF-GRÓ - Vísir
Von er á að TF-GNÁ skili sér úr viðgerð í lok næstu viku en beint í kjölfarið gengst TF-GRÓ undir viðhald. Viðhaldið mun taka stuttan tíma og mun Land...
Jarð­skjálfti í Reykjadal - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Jarð­skjálfti í Reykjadal - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvávakt Veðurstofunnar en þar segir einnig að mjög lítil eftirskjálftavirkni hafi fylgt og að Veðurstofu hafi...
OpenAI counter-sues Apple over alleged theft of trade secrets
📅 28.11.2026 👁️ 1
OpenAI counter-sues Apple over alleged theft of trade secrets
The ChatGPT-maker alleges that tech giant Apple stole trade secrets through a former employee.
Appel­sínu­gul fyrir norðan og mögu­leg vand­ræði á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
Appel­sínu­gul fyrir norðan og mögu­leg vand­ræði á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
Sömuleiðis hefur gul viðvörun verði gefin út í kvöld fyrir Norðurland eystra, miðhálendi og Suðausturland. Lögreglan varar við því að það gæti orðið b...
Átti pláss á síðasta túr Jökuls: „Mér finnst einhver hafa tekið fram fyrir hendurnar á mér“
📅 28.11.2026 👁️ 1
Átti pláss á síðasta túr Jökuls: „Mér finnst einhver hafa tekið fram fyrir hendurnar á mér“
Jónína Þórunn Hansen átti pláss á síðasta túr Jökuls ÞH sem sökk á miðvikudagskvöld, en tilviljun réði því að hún sat heima og slapp við ósköpin.Þrír ...
Átti pláss á Jökli ÞH: „Mér finnst einhver hafa tekið fram fyrir hendurnar á mér“
📅 28.11.2026 👁️ 1
Átti pláss á Jökli ÞH: „Mér finnst einhver hafa tekið fram fyrir hendurnar á mér“
Jónína Þórunn Hansen átti pláss í síðasta túr Jökuls ÞH sem sökk á miðvikudagskvöld, en tilviljun réði því að hún sat heima og slapp við ósköpin.Þrír ...
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn hækkar skatta á Seltjarnarnesi – skipbrot – Þór bæjarstjóri hlýtur að víkja
📅 28.11.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn hækkar skatta á Seltjarnarnesi – skipbrot – Þór bæjarstjóri hlýtur að víkja
Sjálfstæðismenn sem farið hafa með meirihluta í bæjarstjórn Seltjarnarness frá upphafi hafa ávallt lagt höfuðáherslu á að útsvar á Nesinu sé lægra en ...
Jónína átti pláss á Jökli í túrnum örlagaríka en þurfti að hætta við
📅 28.11.2026 👁️ 1
Jónína átti pláss á Jökli í túrnum örlagaríka en þurfti að hætta við
Í gærkvöldi greindi DV frá því að stýrimaðurinn Óli Ásgeir Stueland hafi átt að vera í túrnum á Jökli ÞH299 þegar skipið sökk á miðvikudagskvöld með þ...
Vikulokin í beinni: Öryggismál á sjó í skugga harmleiks
📅 28.11.2026 👁️ 2
Vikulokin í beinni: Öryggismál á sjó í skugga harmleiks
Rætt verður um öryggismál á sjó í fyrri hluta Vikulokanna í dag. Þrír af sautján skipverjum á Jökli SÞ fórust þegar skipið sökk á miðvikudagskvöldið. ...
Vikulokin: Öryggismál á sjó í skugga harmleiks

Átti að vera um borð þegar að skipið fórst - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Átti að vera um borð þegar að skipið fórst - Vísir
Þetta skrifar Óli Ásgeir Stueland, sem var ráðinn yfirstýrimaður á Jökli ÞH, á Facebook-síðu sinni. Þrír létust þegar skipið sökk og fjórtán var bjarg...
Átti að vera um borð þegar skipið fórst - Vísir

Skorti full­búna galla og gegnblotnuðu - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Skorti full­búna galla og gegnblotnuðu - Vísir
„Svo sé ég bátsmanninn hlaupa upp í brú. Ég fylgi honum og sem betur fer gerði ég það af því ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ sagði Ásgeir Elí Gerða...
Seven students killed and nearly 100 injured in explosion in Afghanistan, official says
📅 28.11.2026 👁️ 2
Seven students killed and nearly 100 injured in explosion in Afghanistan, official says
A spokesman for Afghanistan's interior ministry says the blast was caused by carelessness at an explosives depot nearby.
Afghanistan explosion kills 10 students and injures more than 100, official says

Sjóslysin sem mótuðu Ísland og Íslendinga
📅 28.11.2026 👁️ 1
Sjóslysin sem mótuðu Ísland og Íslendinga
Sjóslys fiskiskipsins Jökuls austan við Gletting er eitt mannskæðasta sjóslys síðari ára. Þrír létust en fjórtán var bjargað á ótrúlegan hátt við gríð...
Ládeyða á verðbréfamarkaði
📅 28.11.2026 👁️ 2
Ládeyða á verðbréfamarkaði
Fasteignaverð hefur hækkað um tugi prósenta á Íslandi frá árinu 2021 þótt lítið hreyfist þar nú. Á sama tíma hefur hlutabréfamarkaðurinn skilað neikvæ...
Þingmenn vilja kanna samstarf við ríki utan Evrópu um móttöku hælisleitenda
📅 28.11.2026 👁️ 0
Þingmenn vilja kanna samstarf við ríki utan Evrópu um móttöku hælisleitenda
Fjórtán þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks leggja til að dómsmálaráðherra kanni hvort Ísland geti tekið þátt í samstarfi við örugg ríki utan Evró...
OpenAI og Apple fara í mál við hvort annað á víxl
📅 28.11.2026 👁️ 2
OpenAI og Apple fara í mál við hvort annað á víxl
Gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur höfðað gagnmálsókn á hendur Apple en síðarnefnda fyrirtækið fór í mál við OpenAI í sumar og sakaði það um að hafa...
Leið­togi sér­trúar­safnaðar sak­felldur fyrir 123 mann­dráp til við­bótar - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Leið­togi sér­trúar­safnaðar sak­felldur fyrir 123 mann­dráp til við­bótar - Vísir
Presturinn Paul Mackenzie er stofnandi Good News International-kirkjunnar en þetta er nýjasti dómurinn í röð sakfellinga gegn honum eftir að hundruð m...
Par með barn handtekið
📅 28.11.2026 👁️ 3
Par með barn handtekið
Meðal þess sem kom til kasta lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt var par með barn meðferðis.Í dagbók lögreglunnar kemur fram að í La...
Seven arrested in major drug raid in south Tenerife
📅 28.11.2026 👁️ 3
Seven arrested in major drug raid in south Tenerife
The National Police have arrested seven people and seized more than 34 kilos of cannabis products during a major operation targeting an alleged drug t...
Sjúklingur lést eftir grimmilega meðferð starfsfólks
📅 28.11.2026 👁️ 3
Sjúklingur lést eftir grimmilega meðferð starfsfólks
Ásakanir um ofbeldi gegn sjúklingum á geðheilbrigðisstofnunum hafa skekið Króatíu og mikil reiði hefur gripið um sig í landinu. Upptökin má rekja til ...
Vatnsdalsbændur á kafi í kyn­bótum - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Vatnsdalsbændur á kafi í kyn­bótum - Vísir
Þetta kemur fram í þættinum „Um land allt“ á Sýn+ þar sem blómlegar sveitir í Húnabyggð eru heimsóttar. Þar er Þing beint framhald Vatnsdals með hið f...
Kyrrðarstund í Fossvogskirkju
📅 28.11.2026 👁️ 1
Kyrrðarstund í Fossvogskirkju
Sumir skipverjanna fjórtán sem komust lífs af eftir að Jökull ÞH sökk austan við landið á miðvikudagskvöld hittust á sameiginlegri kyrrðarstund á vegu...
Lægð, eldingar og gular við­varanir - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Lægð, eldingar og gular við­varanir - Vísir
Vindhviður við fjöll gætu staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu þar sem viðvaranir eru í gildi. Búast má við dimmu hríðarveðri á fjallvegum á Norðu...
Fórnar­lambið í Reyk­holti rýfur þögnina - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 4
Fórnar­lambið í Reyk­holti rýfur þögnina - Vísir
Samuel átti sér einskis ills von þegar ráðist var inn á heimili hans. Honum var haldið nauðugum í fjóra daga þar sem hann var beittur hrottafengnu ofb...
More than 1.85 million Canary Islanders eligible to vote in General Election on Sunday
📅 28.11.2026 👁️ 2
More than 1.85 million Canary Islanders eligible to vote in General Election on Sunday
More than 1.85 million people across the Canary Islands are eligible to vote in Spain's general election tomorrow, Sunday 29th November, as the countr...