Merkja má aukinn stuðning Bandaríkjastjórnar gagnvart Úkraínu eftir leiðtogafund forseta ríkjanna tveggja í Washington í gær. Úkraínumenn fá að framleiða bandarískar loftvarnaflaugar, sem þá sárlega vantar gegn eldflaugaárásum Rússa á Úkraínu.
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir það þýðingarmikið fyrir Úkraínumenn sem hafi orðið fyrir auknum árásum Rússa að undanförnu.
Mögulega kunni aukin velgengni Úkraínumanna að skýra velvild MAGA-hreyfingarinnar og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í garð þeirra. Almennt sé auðveldara að bakka sigurvegara.
„Ég held að það megi líka ráða í það þannig að eftir að Trump átti þennan knúsfund með Pútín í Alaska á síðasta ári - hann hefur ekki fengið neitt út úr því í raun og veru. Pútín hefur ekki gefið honum neitt sem hann var að kalla eftir.“