Húsið hefur staðið autt um þónokkurt skeið og liggur undir skemmdum. Brotnar rúður, óhreinindi og glerbrot út um allt.
Miðað við umganginn innanhúss er ljóst að einhverjir hafa notað húsnæðið. Íbúi í nágrenninu sem fréttastofa talaði við sagði alvanalegt að unglingar og ógæfufólk fari þangað inn, til dæmis til neyslu.
Þá er algengt að krakkar í hverfinu leiki sér í og við húsið.
Byrgt er fyrir allar dyr og glugga og hætta á stórslysi ef kviknaði þar í með fólk innan dyra. Enn er rafmagn á húsinu, þrátt fyrir að það hafi ekki verið í notkun lengi.
Þá er brunnur við húsið opinn og óvarinn, með tilheyrandi slysahættu, enda margir metrar til botns.
2300 fermetra hús sem má muna sinn fífil fegri
Húsið var áður í eigu Sankti Jósefssystra og var byggt á áttunda áratug síðustu aldar. Í kaupsamningi Garðabæjar og systranna er kvöð, sem gildir til ársins 2028, um að húsnæðið verði nýtt fyrir starfsemi í þágu aldraðra eða aðra sambærilega starfsemi á sviði mannúðar, heilbrigðismála, barna eða unglinga.
Klaustrið er á tveimur hæðum, samtals 2300 fermetrar að stærð. Systurnar fluttu úr húsinu skömmu fyrir aldamót. Eftir það var rekið þar dvalar- og hjúkrunarheimili um árabil. En nú er óhætt að segja að það megi muna sinn fífil fegri.
Samið við verktaka um endurbætur árið 2024
Samkvæmt svörum frá Garðabæ hefur staðið til að gera húsið upp. Bærinn hafi mikinn áhuga á að Klaustrið gangi í endurnýjun lífdaga, fái gott viðhald og sé glætt nýju lífi með einhverri öflugri starfsemi. Í lok árs 2024 var gengið til viðræðna við E. Sigurðsson ehf. um kaup eða leigu, endurbætur, viðhald og rekstur hússins, samkvæmt þeim kvöðum sem á því hvíla.
Fram kom á fundi bæjarráðs í apríl að sá aðili hefði enn ekki hrint verkefninu í framkvæmd og því var ákveðið að skoða aðra möguleika á framtíðarnýtingu og endurbyggingu hússins.