Vakthafandi hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við fréttastofu að ökumaðurinn hafi verið uppistandandi þegar viðbragðsaðila bar að garði.
Hann hefur því sloppið ágætlega úr árekstrinum en ljóst er að bíllinn hefur orðið fyrir talsverðu tjóni.