Lögregla var kölluð til í dag eftir að golfbíl var ekið á grindverk í umdæmi lögreglustöðvar 4. Var ökumaður búinn að vera veikur og datt út úr bílnum. Hann var fluttur á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar.
Þá var tilkynnt um eld í húsnæði í sama umdæmi þar sem sást til fjögurra krakka koma út úr húsinu og yfirgefa vettvang á rafskútu. Búið var að kveikja í rusli á jarðhæð hússins. Ekki varð mikið tjón en mikill reykur var í húsinu.
Skemmdi bifreiðar og dyr
Einnig var tilkynnt um mann sem var að skemma bifreiðar og dyr á húsnæði og var sá handtekinn og látinn laus að skýrslutöku lokinni.
Í umdæmi lögreglustöðvar eitt var tilkynnt um þjófnað úr bíl og annan úr matvöruverslun. Þá var tilkynnt um innbrot í geymslu í heimahúsi.
Lögregla hafði einnig afskipti af manni sem varð til vandræða í matvöruverslun.