Félagsmiðstöðvar eru lokaðar þegar ungmenni þurfa mest á þeim að halda, segir móðir barns í unglingadeild. Formaður foreldrafélags um unglingadrykkju og forvarnir hefur áhyggjur af því að drykkja hafi færst í aukana að undanförnu.
Eftir menningarnótt talaði lögregla um að hafa haft afskipti af á fjórða tug ungmenna, þar sem áfengi var hellt niður og haft samband við foreldra. Í kjölfarið töluðu yfirlögregluþjónn og framkvæmdastjóri Samfés um að drykkja unglinga væri að færast í aukana.
Aðgengi aukist og vandinn með
„Já, það hefur verið að færast í aukana síðustu ár. Það er hárrétt hjá þeim. Það hefur aukist. Aðgengi unglinga að áfengi og sterkari fíkniefnum hefur aukist, í gegnum netsölu, heimsendingar og samfélagsmiðla, sem er mjög slæm þróun,“ segir Sverrir Sigmundason, formaður foreldrafélagsins í Seljaskóla.
„Já, ég held að það sé klárt mál að það er vaxandi unglingadrykkja og þetta er stóraukið vandamál. Við tökum alveg eftir því,“ segir Tinna Heimisdóttir, móðir.
Þau eru sammála um að samvera með foreldrum og samskipti við aðra foreldra séu besta forvörnin.
„Það sem er helst til ráða er allar þessar forvarnir sem við erum að sinna í dag, bregðast ef stuðningurinn er ekki frá heimilinu. Það er erfitt að segja það en foreldrarnir eru að bregðast í þátttöku og því að styðja þetta forvarnarstarf,“ segir Sverrir.
Dæmi eru um að ungmenni safnist saman til dæmis í Elliðaárdal og Guðmundarlundi, eftirlitslaus.
„Það sýnir sig bara að þarna eru krakkar að hópa sig saman til að drekka eða jafnvel eitthvað annað. Okkur finnst þetta ekki góð hópamyndun, engin handleiðsla fagfólks og ekkert öryggi,“ segir Tinna.
Þurfa jafn mikið á félagsmiðstöðum að halda á sumrin
Þau segja mikilvægt að efla starf frístunda- og félagsmiðstöðva og hafa þær opnar meira, eins og til dæmis yfir sumartímann.
„Þegar félagsstarf og tómstundir fyrir 13–18 ára er frekar lítið þá eru þær lokaðar. Vetrarstarfið, sem er gífurlega öflugt og gott, er ekki við lýði þegar við þurfum mest á því að halda, á sumrin,“ segir Sverrir jafnframt.
Tinna tekur undir þetta sjónarmið. „Krakkar eru alveg jafn mikið í hópamyndun á þriðjudögum, fimmtudögum, um helgar og á sumrin, en félagsmiðstöðvar eru lokaðar þá,“ segir Tinna.
„Við þurfum að gera miklu betur fyrir unglingana okkar,“ bætir hún við.
Sofið á verðinum
„Það er jafnvel þörf á öðru samfélagsátaki eins og var gert 1980–1990 þegar áfengisdrykkja ungmenna í miðbæ Reykjavíkur fór úr öllum böndum. Við sem samfélag tókum okkur saman um að þetta gengi ekki. Það spratt upp öflugt forvarnarstarf sem hefur því miður á undanförnum árum dalað svolítið og við höfum sofnað á verðinum,“ segir Sverrir.