Reykvíkingur ársins 2026 er Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastýra Laufásborgar.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tilkynnti valið við opnun Elliðaáa í morgun og er þetta í sextánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.
Fjöldinn allur af fólki var tilnefndur en að yfirferð lokinni var ákveðið að veita Jensínu, eða Jensu eins og hún er oft kölluð, titilinn. Í tilnefningum var bent á framlag hennar til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi.
Kærleikurinn er besti leikurinn
Jensa hefur helgað líf sitt því að standa með börnum og fjölskyldum þeirra. Í samtali við mbl.is segir hún að lykillinn að starfinu sé að trúa því að kærleikurinn sé besti leikurinn. Sjálf hefur hún tekið þátt í dagskrá barnanna á Laufásborg síðan á síðustu öld.
Það kom Jensu aldeilis á óvart að hafa verið valin Reykvíkingur ársins og segist hún varla hafa trúað sínum eigin eyrum. Það sé mikill heiður að fá slíka útnefningu fyrir ævistarf sitt.
„Ég er mjög þakklát á hverjum degi fyrir að hafa valið þetta í lífinu. Að vera kærleiksrík manneskja og vilja láta gott af sér leiða er lykilatriði og að standa sterk. Ég tek við þessari dýrmætu viðurkenningu fyrir hönd okkar allra sem stöndum að Laufásborg, við erum eins og ein fjölskylda,“ segir Jensa.
Hún var svo mætt eldsnemma í morgun í veiðihúsið við Elliðaá og renndi þar fyrir laxi í boði borgarstjóra og Stangveiðifélags Reykjavíkur.



