Japanskt herskip að nafni Yamagiri liggur við akkeri í Faxaflóa um þessar mundir.
Skipið er hér á vegum æfingaflota japanska sjávarsjálfsvarnarliðsins, sem er í fyrsta sinn kominn til Reykjavíkur.
Heimsóknin er hluti af þjálfunarsiglingu um heiminn, þar sem nýútskrifaðir yfirmenn sjávarvarnarliðsins eiga að öðlast reynslu á sjó til að búa sig undir leiðtogahlutverk framtíðarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá japanska sendiráðinu.
Í tengslum við heimsóknina mun hljómsveit sjávarvararliðsins, sem er sögð skipuð afar færum tónlistarmönnum, halda sérstaka tónleika fyrir almenning.
Japanska sendiráðið stendur fyrir viðburðinum en hljómsveitin er skipuð fimmtán liðsmönnum úr sex hljómsveitum innan japanska hersins.
Tónleikarnir verða við Hörputorg klukkan 13.30 á miðvikudag.
Á vef Hörpu segir að á dagskránni verði um fimmtíu mínútna fjölbreytt og kraftmikil tónleikadagskrá, þar á meðal hefðbundinn japanskur taikó-trommuleikur og blásarasveitartónlist.
Þá verði flutt fjölbreytt úrval tónlistar, allt frá alþjóðlegri tónlist og kvikmyndatónlist til japanskra dægurlaga og tónlistar úr japönskum teiknimyndum.
Á þessu ári eru sjötíu ár liðin frá stofnun stjórnmálasambands Japans og Íslands.
„Í þeim anda er markmið tónleikanna að fagna vináttu og gagnkvæmum skilningi þjóðanna tveggja í gegnum tónlist,“ segir í dagskrá Hörpu.