Íþrótta- og heilsufræðingur segir börn vera rænd því að taka áhættur og því að læra af þeim. „Áhættuleikur er á undanhaldi sem og frjáls leikur barna. Fyrir mig að lesa frétt um að börn séu að byggja kofa í Vesturbænum er fagnaðarefni,“ sagði Sabína Steinunn Halldórsdóttir í Morgunútvarpinu á Rás 2 fyrr í dag.
Fjallað hefur verið um áform Reykjavíkurborgar um að fjarlægja kofa sem börn byggðu í sameiningu við Lynghaga í Vesturbæ Reykjavíkur. Ástæðan er sú að hann er ekki öryggisvottaður. Börn í hverfinu hafa mótmælt þessu harðlega.
Sabína segir að gera eigi allt til að auka frjálsan leik, þar sem hugmyndaflug og tilraunir barna fá að njóta sín. „Hann hefur gríðarleg áhrif á alla heilsuþætti barna – líkamlega, andlega og félagslega heilsu.“
Hún segir mikilvægt að staldra við og spyrja hvort það sé hætta eða áhætta sem sé annars vegar. „Munurinn er mikill. Hætta er eitthvað sem börnin ráða ekki við en áhætta er eitthvað sem þau eru að læra af og meta sjálf.“
„Ég geri ráð fyrir að þarna í Vesturbænum sé fullt af flottum frumkvöðlum og börnum sem nota hyggjuvitið og lausnaleitina og þau eru úti að leika sér, ekki heima í skjánum.“