Ísraelsher hefur girt fyrir aðgang annarra en íbúa þorpsins Taybeh á Vesturbakkanum. Þorpið er ein af fáum byggðum kristinna Palestínumanna þar um slóðir.
Reuters hefur eftir talsmanni hersins að tilgangurinn sé að stemma stigu við auknu ofbeldi ísraelsks landtökufólks í garð Palestínumanna um gervallan Vesturbakkann.
Áréttað er að þorpið sé aðeins lokað Ísraelsmönnum. Alþjóðasamfélagið hefur brugðist við ofbeldinu, til að mynda setti Evrópusambandið í maí viðskiptaþvinganir á landtökufólk og stofnanir sem það ástundar.