Íslenskur hestur og fyrrverandi heimsmeistari var teymdur að breska þinghúsinu. Uppátækinu var ætlað að auka vitund fólks um ADHD.
Það var Jo Platt, þingmaður Verkamannaflokksins frá Manchester, sem sá um að koma íslenska hestinum í þinghúsið.
Hesturinn heitir Prestur, sautján vetra gæðingur frá Borgarfirði sem vann gullverðlaun ásamt knapa sínum Mána Hilmarssyni á heimsmeistaramótinu í Hollandi árið 2017. Ekki má flytja hesta aftur heim til Íslands eftir heimsmeistaramót og því eru þeir ávallt seldir úr landi eftir keppni.
Presti er lýst sem blíðum hesti með mikið innsæi sem og einstaka hæfileika til þess að tengjast börnum og fullorðnum með taugaójafnvægi. Var þetta á viðburði á vegum þingforseta til þess að vekja athygli á að nota dýr til að hjálpa fólki.
Prestur hefur verið notaður til þess að gleðja börn og fullorðna, meðal annars í sumarbúðum og á ýmis konar viðburðum. Er honum lýst sem einstökum sendiherra sinnar tegundar.
Á meðal þeirra sem voru viðstaddir á viðburðinum var Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í Bretlandi. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Prestur heimsækir þinghús en hann hefur áður heimsótt Senedd, þinghúsið í borginni Cardiff í Wales.
„ADHD er enn þá oft misskilið og stundum aðeins skilgreint sem læknisfræðilegt fyrirbæri,“ sagði Platt. „Hvort sem það er með aðstoð dýra, íþrótta, jafningjatengsla eða aðgengilegra rýma, þá dafna einstaklingar þegar þeir finna fyrir skilningi og stuðningi.“