Íslandsbanki sagði upp 20 manns í dag. Uppsagnirnar eru hluti af skipulagsbreytingum bankans þar sem stjórnendum er fækkað um 15 prósent og forstöðumönnum um 20 prósent.
Greint var frá því í febrúar að 30 starfsmenn bankans létu af störfum á árinu. Þær eru hluti af því að fólk hætti störfum snemma vegna aldurs. Alls fækkar því um 50 starfsmenn hjá Íslandsbanka í þessum tvennum aðgerðum.
Kostnaður við uppsagnirnar í dag nemur tæplega 260 milljónum króna. Stjórnendur bankans áætla að með fækkun starfsmanna um 50 lækki launakostnaður um milljarð á ári.
Nýtt skipulag á að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir, samkvæmt tilkynningu bankans. Þær eiga að styrkja bankann þar sem stafræn þróun, aukin nýting gervigreindar og breyttar kröfur viðskiptavina kalli á nýja nálgun í rekstri og þjónustu.
Nýtt stoðsvið verður sett upp sem tekur yfir lögfræðiþjónustu, mannauðsmál, markaðs- og samskiptamál, rekstrardeild, stefnumótun og sjálfbærni.
Fréttin hefur verið uppfærð.