Íslensk stjórnvöld hafa unnið að því í fjögur ár að innleiða reglugerð ESB um starfsemi netfyrirtækja sem framkvæmdastjórn ESB telur að Meta, móðurfyrirtæki Facebook og Instagram, fari á svig við.
Frumniðurstöður rannsóknar sem staðið hefur yfir í tvö ár á grundvelli þessarar reglugerðar benda til þess að Meta geri ekki nóg til að hindra aðgang barna undir 13 ára að Facebook og Instagram.
Reglugerðin tók gildi árið 2022 og er íslenskum stjórnvöldum skylt að innleiða hana á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Innleiðingin er á forræði atvinnuvegaráðuneytisins. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir mikilvægt að reglugerðin verði innleidd sem fyrst.
„Við höfum þekkingu á því núna hvaða álagi óheftur aðgangur barna og ungmenna að þessum samfélagsmiðlum veldur og áreiti þessara sömu samfélagsmiðla á börn og ungmenni,“ segir Hanna Katrín.
Reglugerðin snýst því ekki aðeins um að tryggja að réttindi notenda verði þau sömu og annars staðar í Evrópu að mati ráðherra. Hún snýst einnig um að tryggja andlega heilsu.
„Við vitum hvaða áhrif þetta hefur á líðan fólks, getu barna til að stunda skóla og einbeita sér þar. Það eru öll þessi viðfangsefni sem við þurfum að kljást við. Þetta er einn risa liður í því, auðvitað er þetta mjög mikilvægt,“ segir Hanna Katrín.