Íranir ákærðir fyrir skjalafals

LeifsstöðMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Kona og karl frá Íran hafa verið ákærð fyrir skjalafals en mál þeirra verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness 28. maí næstkomandi.
Eru þau bæði ákærð fyrir skjalafals með því að hafa, fimmtudaginn 8. janúar 2026, framvísað í blekkingarskyni, sem sínu vegabréfi, við starfsmann sem var við hlið 5-6 í Flugstöð Leifs Eiríkssonar breytifölsuðu vegabréfi frá Frakklandi.
Þess er krafist að þau verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum er ákærandi í málinu.