„Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá.“ Þetta sagði Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, að ríkisstjórnarfundi loknum í dag.
Fréttamaður Vísis bar þar sögusagnir undir ráðherrann um að hún hefði farið í áfengismeðferð í 18 daga löngu veikindaleyfi sínu í maí. Inga snéri aftur úr leyfinu í júní og sagði skæða flensu hafa náð sér.
Ráðherrann kvaðst einnig hafa heyrt orðróminn um að hún hefði farið í afvötnun en sagðist skála í kokteil hvenær sem henni sýndist. Hún ætti ekki við áfengisvanda að etja.
Lofa að segja ykkur þegar Bakkus hefur náð tökum á mér
Eftir viðtalið sendi Inga út í beinu streymi á Facebook-reikningi sínum og sagði fréttamann hafa spurt sig út í drykkjuna. Þar kvaðst hún furða sig á sögusögnunum og ekki geta gert sér í hugarlund hver hefði komið þeim af stað.
„Fréttir af minni drykkju, fréttir af minni meðferð eru meira en stórlega ýktar,“ sagði Inga.
Hún hét því þó að upplýsa þjóðina ef hún þyrfti að leita sér aðstoðar í framtíðinni. Ráðherrar fái aftur á móti ekki mörg tækifæri til þess að lyfta glösum og hún taki starfinu afar alvarlega.
„Ég skal bara lofa því að segja ykkur það þegar Bakkus hefur náð þannig tökum á mér að ég þurfi að leita aðstoðar.“