Skólakerfið á Íslandi fær falleinkunn hjá Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Inga segir að „ekkert hafi verið gert undanfarin ár annað en að horfa á hlutina fara niður á við. Það er bara staðreynd. Við erum að horfa upp á stórkostlegt hrun til framtíðar í íslensku samfélagi ef við tökum hlutina ekki alvarlega.“
Í grein á Vísi tekur kennarinn Andri Þorvarðarson undir með Ingu. Andri beinir spjótum sínum að forystu kennara sem hann segir hafa flotið að feigðarósi undanfarin ár. Grein Andra ber yfirskriftina Menntaforystan er að plata þig.
Íslensk börn tveimur árum á eftir erlendum jafnöldrum
Andri vísar í fréttir um að læsi barna hér á landi fari stöðugt versnandi. Nú sé svo komið að íslenskir nemendur séu tveimur skólaárum á eftir erlendum jafnöldrum sínum samkvæmt samanburði við OECD-ríki.
Andri telur andstöðu forystu kennara við róttækar breytingar á umgjörð kennslu og mati á árangri nemenda vera eina helstu orsök vandans. Hann segir dæmi um að nemendur útskrifist úr grunnskóla með góðar einkunnir án þess að vera undirbúnir fyrir framhaldsskólanám.
„Framhaldsskólar taka á móti nemendum sem útskrifast úr grunnskóla með B í íslensku en tala svo varla stakt orð í málinu,“ segir Andri.
Segir forystu kennara valda gífurlegu tjóni
Andri hefur starfað sem framhaldsskólakennari í meira en áratug. Hann segist hafa vaxandi áhyggjur af þeirri djúpu gjá sem hafi myndast milli starfandi kennara og „forystufólks í menntasamfélaginu, til að mynda hjá Kennarasambandinu.“
Að mati Andra eru vankantar skólakerfisins og „yfirhylming menntaforystunnar“ farin að valda gífurlegu tjóni.
Hann segir „froðukennda háskólafræði“ ekki vera lausnina. Markmið skólakerfisins eigi að vera að gera ungt fólk að nýtum þjóðfélagsþegnum, þeim sjálfum og samfélaginu til heilla.
Tvö atriði nefnir Andri sérstaklega sem þurfi að bæta hið snarasta: annars vegar kennaramenntun og hins vegar það sem hann kallar „handónýtt einkunnakerfi“ grunnskólanna.
Grein Andra lýkur með hvatningu um að skipta út forystu Kennarasambands Íslands.