Þetta staðfestir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi en mbl.is greindi fyrst frá. Forstjóri flugfélagsins hefur sakað flugmenn um að stunda óformlegar aðgerðir í tengslum við kjaraviðræður Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Formaður félagsins hefur hafnað þessu.
Áætlunarflugi Icelandair til Kaupmannahafnar var aflýst 5. maí og ferð til Seattle þremur dögum síðar. Þá var flugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Brussel í Belgíu seinkað um rúma tvo tíma 11. maí vegna forfalla hjá áhöfn.
Kjarasamningar FÍA við Icelandair féllu úr gildi í lok september og er kjaradeila þeirra komin inn á borð ríkissáttasemjara. Samningar eru sömuleiðis lausir við flugvirkja og flugþjóna.
Vill að aðilar sýni ábyrgð
Icelandair segir að þótt FÍA fullyrði að engar aðgerðir séu hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og hefur Bogi Nils Bogason, forstjóri félagsins, kallað eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, hefur sagt af og frá að félagið sé í óformlegum verkfallsaðgerðum. Félagið hafi um árabil varað við því að viðvarandi ástand líkt og nú geti komið upp vegna gríðarlegs álags á hóp flugmanna.
„Þegar álagið er svo mikið þá er hætt við því að þessi sveigjanleiki, sem er sennilega það verðmætasta sem við hjá Icelandair eigum, að hann verði ekki eins aðgengilegur og áður hefur verið,“ sagði Jón Þór á mánudag. Hann hafnaði fullyrðingum Boga um að kröfur flugmanna í kjaraviðræðunum séu óraunhæfar.
Fréttin hefur verið uppfærð.