Hver verður útivistargoðsögn sumarsins 2026?

Vertu út um allt í sumar og uppgötvaðu nýjar slóðir á höfuðborgarsvæðinu.
Nýtt lýðheilsu- og útivistarverkefni, Útivistaáskorun Hlaupadagskra.is 2026 hófst formlega í vikuni og stendur yfir til 6. september. Markmið verkefnisins er að hvetja einstaklinga, fjölskyldur, vini og vinnufélaga til aukinnar hreyfingar, útivistar og samveru með því að uppgötva ný útivistarsvæði í nærumhverfinu.
Þátttakendur geta heimsótt yfir 100 staði á höfuðborgarsvæðinu, gengið, hlaupið eða hjólað á milli staða, safnað stigum og unnið sér inn áfangamerki með því að tékka sig inn með GPS, skanna QR-kóða eða leysa einföld verkefni. Þátttakendur sem taka þátt geta líka unnið vinninga frá öflugum samstarfsaðilum verkefnisins í sumar.
Útivistaáskorunin er opin öllum óháð aldri eða reynslu. Hvort sem fólk kýs stutta gönguferð með fjölskyldunni, kvöldskokk í hverfinu eða lengri hjólaferð um græn svæði borgarinnar er markmiðið að gera útivist að skemmtilegri upplifun og hvetja fólk til að prófa nýja staði sem það hefur kannski aldrei heimsótt áður.
Verkefnið hlaut styrk frá Lýðheilsusjóði og er unnið í samstarfi við Utumallt.is og frábæra samstarfsaðila. Með verkefninu er leitast við að sameina útivist, leikjavæðingu og stafræna tækni til að efla heilsu og lífsgæði íbúa með jákvæðum og aðgengilegum hætti.
Þátttakendur eru hvattir til að deila upplifun sinni á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #utivistaaskorun og skora á vini og ættingja að taka þátt.
Nánari upplýsingar og skráning:
http://hlaupadagskra.is/askorun
Áskorunarvefur:
https://passportage.com/p/utivistaaskorun