Útlit er fyrir að það rigni og blási á fólk og dýr um land allt framan af degi í dag. Norðan og austan til getur fólk þó átt von á þurru eftir hádegi þegar þar styttir upp að mestu.
Í kvöld og nótt hvessir á norðvestanverðu landinu og þá er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm í vindstrengjum. Í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að varasamt geti verið að aka ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
Næstu daga verður dálítið vindasamt og kólnar þegar líður á vikuna. Í dag verður þó allt að 14 stiga hiti, hlýjast á norðaustanverðu landinu.
Veðurspá dagsins:
Sunnan 8-15 metrar á sekúndu og rigning en styttir að mestu upp síðdegis á Norðaustur- og Austurlandi. Hvessir um tíma í kvöld. Suðvestlægari á morgun og rigning á köflum en þurrt og bjart veður um landið norðaustanvert.
Hiti 7-14 stig, hlýjast norðaustan- og austanlands en fer að kólna vestast annað kvöld.
Næstu daga verður allhvöss suðvestanátt með rigningu, en að mestu þurrt norðaustan til. Milt í veðri en kólnar undir kvöld. Vestlægar áttir, dálitlar skúrir eða slydduél og fremur svalt upp úr miðri viku.
Fréttin var uppfærð eftir að veðurfræðingur Veðurstofunnar birti athugasemd um hvassviðri eða storm.