Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason halda áfram að svifta hulunni af viðkvæmum áskorununum karlmennskunnar. Núna er það sumarkvíðinn og þrif, val og notkun á gasgrillum í nýjasta þættinum af Menn eins og við.
„Þú tekur sjénsinn á íslenska sumarið Þarft svo að ríghalda þér í grillið í 12 metrum á sekúndu á pallinum meðan allir eru í sundfötum á Tenerife.“
Einar og Baldur Rafn fara á kostum í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Menn eins og við, þar sem þeir félagarnir velta upp einni stærstu tilvistarkreppu íslenska miðaldra mannsins: á maður að bóka sólarferð eða taka sjénsinn á íslenska sumrin. Þeir Baldur og Einar ræða hinn svokallaða „sumarkvíða“ sem margir kannast við.
„Sumarkvíðinn er eiginlega þetta árlega veðmál Íslendingsins: á maður að taka sjénsinn á íslenska sumrinu eða enda fastur á pallinum í roki og rigningu meðan allir eru að glenna sig í sundfötum frá Tenerife,“ segir Baldur bugaður af Sumarkvíða.
„Ef maður bókar ferð til Tenerife eða Alicante er hættan sú að missa af eina alvöru sumri Íslands. En ef maður ákveður að vera heima og treysta á íslenska veðrið getur maður allt eins endað á pallinum í roki og rigningu á meðan samfélagsmiðlarnir fyllast af sundfataselfíum frá sólarströndum Evrópu.”
Þeir félagarnir gera óspart grín að sjálfum sér og samferðamönnum sínum þegar þeir ræða þetta árlega veðmál Íslendingsins: að sitja annaðhvort uppi með eftirsjá yfir að hafa farið eða eftirsjá yfir að hafa ekki farið.
Umræðan færist svo hratt yfir í annað viðkvæmt málefni íslenskra karla: grillin.
Þar fara þeir Baldur og Einar yfir Weber-grill, brennara, „high power“-stillingar og allan þann undarlega metnað sem getur myndast í kringum grillmenningu landsins. Með mikilli sjálfshæðni velta þeir því upp hvort karlmennskan mælist í dag jafnvel frekar í stærð og glæsileika grillsins en nokkru öðru.
Þeir gera góðlátlegt grín að þeirri þróun að miðaldra menn geti eytt ótrúlegum tíma í að ræða hita, aukahluti, reykkassa og grilltækni af meiri alvöru en mörg önnur málefni lífsins. Grillið sé orðið ákveðin framlenging af sjálfsmyndinni, nýr vettvangur þar sem menn sýna bæði smekk, stöðu og tæknilega yfirburði.
Í þættinum tekst þeim að fanga mjög kunnuglega mynd af íslenskri karlmennsku; þar sem sjálfstraust, lífsstíll, sumarfrí og grill renna saman í eitt stórt verkefni og þar sem húmorinn felst helst í því hversu alvarlega menn taka allt saman.