Hundruðir minka í Mosfellsdal

MinkurÞetta er ekki einn þeim heppnu sem sluppu
Mynd: Wikipedia
Nokkur hundruð minkar sluppu úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun. Lögreglu barst tilkynning um málið laust eftir klukkan sjö.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu liggur ekki fyrir með vissu hvernig minkarnir komust út og er rannsókn málsins á frumstigi.
Viðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir hafa verið upplýst um atvikið og hafa þegar brugðist við.
Lögreglan segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.