„Hann var fastur í einhverju girni og við höfum nú látið fjarlægja það,“ segir Aðalsteinn Einarsson, verkstjóri í Byko í Kjalarvogi 16. Hann segir þetta ekki alvarlegt tilvik og telur girnið sem krummi flækti sig í sennilega hafa fokið upp á þakið.
„Krummi var þokkalega lifandi þegar hann var tekinn niður. Þeir tóku hann og fóru með hann til dýralæknis.“
Að sögn Aðalsteins er hrafnapar með laup skammt frá og honum sýnist sem þrír hrafnar séu nú komnir aftur, eins og var. Sjálfir eiga þeir ekki tæki sem ná upp á þak og var því tækjabíll frá slökkviliðinu fenginn til leiks.
„Þeir virtust svo vanir að þeir voru með allan búnað, alveg klárir. Þetta er örugglega ekki í fyrsta skipti sem þeir lenda í þessu, og ekki það síðasta. Þetta var fullorðinn hrafn, ekki ungagrey sem er hér stundum á vappi í kring, brjálaður og vill fá að borða.“
Aðalsteinn segir hrafnana meðalgæfa og þeir láti alveg vita ef þeir eru ósáttir við mannskapinn. Dýralíf er talsvert í kringum Byko, gæsir, dúfur og allur pakkinn og svo er talsverð veiði við höfnina. Og þá er strollan með stöng á kæjanum.
„Flestir veiða og sleppa. En ekki allir. Við myndum nú ekki borða fisk sem kemur hér upp úr höfninni, þar sem olíubrákin er fyrir ofan og ætið vart kræsilegt. En einhverjir taka fiskinn. Þú mátt enn veiða þér til matar, það er ekki búið að banna það.“