Drengur á táningsaldri var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans eftir að hópur ungmenna veittist að honum skammt frá Heilsugæslunni í Hamraborg í Kópavogi í dag. Drengurinn var meðvitundarlaus, samkvæmt sjónarvottum sem fréttastofa ræddi við.
Að sögn lögreglu voru þeir sem eru grunaðir um að hafa ráðist á hann farnir þegar lögregla kom á vettvang. Heimir Ríkharðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að lögreglan sé með upplýsingar um þá sem grunaðir eru um að hafa staðið að árásinni.
Samkvæmt sjónarvottum voru fjórir eða fimm drengir í hópnum. Þeir hafi verið um 14 til 15 ára.
Heimir segir að drengurinn hafi verið vankaður þegar lögreglumenn komu á staðinn og með áverka á höfði og andliti. Upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir.
Starfsmenn heilsugæslunnar hlúðu að drengnum meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Samkvæmt heimildum fréttastofu var biðin eftir sjúkrabílnum slík að hringja þurfti aftur til að kanna hvenær væri von á honum. Nærri hálftími hafi liðið frá fyrsta símtali og þar til sjúkrabíll kom á staðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins liðu hins vegar ellefu mínútur frá því að fyrsta símtalið barst og þar til sjúkrabíll kom á staðinn. Í fyrstu hafi alvarleiki málsins ekki legið fyrir en eftir annað símtal hafi forgangur verið hækkaður.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.