Í júní í fyrra óskaði Vegagerðin eftir því við skipulagsráð Akureyrarbæjar að hjartalaga rauð umferðarljós sem logað hafa í bænum um árabil verði fjarlægð. Hjörtun ógni umferðaröryggi meðal annars vegna þess hve oft ferðamenn taka myndir og sjálfur með ljósunum, jafnvel á miðeyjum fjölfarinna gatnamóta.
Málið vakti mikla athygli og kepptust Akureyringar við að lýsa yfir afdráttarlausum stuðningi við hjörtun og sögðu ómögulegt að verða við beiðninni. Halla Tómasdóttir blandaði sér í leikinn og gerði skoðanakönnun meðal fylgjenda sinna á Instagram þar sem hún kannaði ást fólks á ljósunum.
Þá hló þingheimur þegar Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra reyndi að mynda hjarta með höndunum í þingsal þegar málið var rætt í þingsal.
Í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn fréttastofu um hver staðan sé á málinu tæpu ári síðar segir að það sé enn í vinnslu. Fyrr á árinu hafi innviðaráðuneytið óskað eftir umsögn Vegagerðarinnar um tillögu að breytingu á reglugerð um umferðarmerki.
Vegagerðin gerði athugasemdir við tillöguna og í framhaldi af því óskaði ráðuneytið eftir því að Vegagerðin útfærði heimild til notkunar hjartalaga ljósops í rauðum umferðarljósum í reglugerð.
Nú sé unnið að þeirri yfirferð en næstu skref ráðist af niðurstöðu þeirrar vinnu og áframhaldandi meðferð málsins hjá stjórnvöldum.