Hitamet var slegið í Bretlandi annan daginn í röð, þegar 35 stiga hiti mældist á Heathrow-flugvelli og í Kew Gardens í Lundúnum. Fyrra met var slegið í gær þegar 34,8 stiga hiti mældist í Kew Gardens. Þar áður hafði ekki verið svona heitt í maí síðan 1944.
Veðurstofa Bretlands tilkynnti um hitametið síðdegis. „Dagurinn í dag er sá heitasti í maí síðan mælingar hófust. Hiti mældist 35 stig á Heathrow og Kew Gardens. Þar til í gær var hitametið í maí 32,8 stig en núna hefur það verið slegið tvo daga í röð um tvær heilar gráður á Celsíus.“
Heilbrigðisöryggisstofnun Bretlands hefur gefið út viðvaranir vegna hita á stórum hluta Englands. Þær eru í gildi til 17 á fimmtudag. Viðvaranirnar gefa til kynna auknar líkur á dauðsföllum, sérstaklega meðal 65 ára og eldri. Einnig er varað við álagi á heilbrigðiskerfið og félagsþjónustuna og eftirspurn eftir rafmagni.
Fólk er hvatt til að fara varlega í vatni eftir að fjórir létust síðustu daga. Maður á sjötugsaldri fékk hjartaáfall eftir að hafa hlaupið út í sjó í Cornwall til að aðstoða ættingja í gær.
Unglingsstrákur týndist á þekktum sundstað í Rother Valley Country Park í Suður-Yorkshire í gær. Lík hans fannst í morgun. Unglingsstúlka lést einnig í Kingsbury Water Park í Warwick-skíri á mánudagskvöld og þrettán ára strákur lést eftir að hafa lent í erfiðleikum í vatnslóni í Halifax í Yorkshire í gær.
Sjö dauðsföll í Frakklandi tengd hitabylgjunni
Hitamet féllu líka annars staðar á Bretlandseyjum. Hitamet féll í Wales í dag. 32,3 stiga hiti mældist í Bute Park í Cardiff og slær met gærdagsins sem var 32,2 stig á Hawarden-flugvelli í Flintshire.
Fyrra met er frá 29. maí 1944 þegar 30,6 stiga hiti mældist í Newport.
Í dag var einnig heitasti dagur síðan mælingar hófust á Írlandi. Hiti fór upp í 29,2 stig í Oak Park í Carlow-sýslu á Suður-Írlandi. Þar var hitamet einnig slegið í gær þegar hiti fór upp í 28,6 stig á Shannon-flugvelli í Clare-sýslu á Vestur-Írlandi..
Fyrra met, 28,4 stig, var sett í Kerry-sýslu árið 1997. Hitametið gæti enn fallið ef hiti hækkar meira í dag.
Hitabylgja gengur sömuleiðis yfir meginland Evrópu. Stjórnvöld í Frakklandi segja sjö dauðsföll hafa orðið síðustu daga í tengslum við hitabylgjuna. Maud Bregeon, talskona stjórnvalda, sagði fimm dauðsföll hafi orðið vegna drukknunar.
Veðurstofa Frakklands sagði hæsta hita í landinu í gær hafa mælst 37,1 stig nærri Hossegor í suðvesturhluta landsins. Gærdagurinn hafi verið sá heitasti sem mælst hafi í maímánuði síðan mælingar hófust. Meðalhiti á þrjátíu veðurstofum í landinu hafi verið 24,4 stig, fyrra met hafi verið 23,7 stig árið 1944.