Fulltrúar Samfylkingar í borgarráði lögðu fram bókun á aukafundi borgarráðs í morgun, þar sem umfangsmiklar breytingartillögur í rekstri borgarinnar voru samþykktar.
Samfylkingin lagði fram 47 spurningar um hvernig breytingarnar yrðu í framkvæmd og hvernig árangur og áhrif yrðu metin.
Gagnrýnistónninn er skýr og spurningarnar líka.
Heiða Björg Hilmisdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og nú borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, gagnrýnir grundvallarstefnubreytingu í lykilmálaflokkum án þess að opinber umræða hafi farið fram.
Heiða Björg ræddi þessi mál í Speglinum í kvöld.
Verið að færa fólk og fjármagn úr hverfunum
Heiða Björg segir að með hagræðingartillögunum sé verið að færa bæði starfsfólk og fjármagn úr hverfum borgarinnar og inn í miðlægt kerfi.
„Þar sem að samþætting verður erfiðari og þjónusta við fjölskyldur verður flóknari.“
Hún segir að í borgarstjóratíð Samfylkingar hafi áherslan verið á hinn veginn, farið var út í hverfin þar sem fólkið er. En nú sé verið að snúa þeirri þróun við og það hugnist henni ekki.
Heiða segir að tillögur borgarstjórnar séu þvert á það sem töluleg gögn erlendis frá hafi verið að sýna, sem dæmi frá OECD. Tillögurnar séu í raun í andstöðu við stefnumótun Reykjavíkurborgar undanfarin ár.
Hún segir það ekki hagkvæmt fyrir fjölbreyttar fjölskyldur að þurfa að sækja þjónustu á marga staði og jafnvel um langa leið, frekar en að geta fengið aðstoð í sínu nærumhverfi.
Vont að þetta sé gert í upphafi nýs skólaárs
Heiða segir tillögurnar valda uppþoti í þjónustu borgarinnar og það sé slæmt að það sé gert í sömu viku og skólar séu að taka aftur til starfa eftir sumarleyfi.
Heiða segir að í embætti borgarstjóra hefði hún aldrei gripið til svo umfangsmikilla breytinga.
„Ég hefði aldrei farið í það að minnka þjónustu við íbúa borgarinnar.“
Heiða gagnrýnir einnig að breytingarnar hafi verið tilkynntar á lokuðum fundi borgarráðs, með stuttum fyrirvara.
Hún segir ljóst að meirihlutinn vilji forðast málefnalega umræðu um þá stefnubreytingu sem í tillögunum felst.
„Stefnur borgarinnar eiga að vera samþykktar í borgarstjórn af lýðræðislega kjörnum fulltrúum.“