Hefur misst sex störf í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar fyrir 4 árum síðan - DV

Hefur misst sex störf í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar fyrir 4 árum síðan - DV

Hefur misst sex störf í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar fyrir 4 árum síðan - DV

Gísli Bachman, stjörnuspekingur og einkaþjálfari, segir líf sitt og fjölskyldunnar hafa farið gjörsamlega á hliðina fyrir fjórum árum eftir fréttaskýringarþátt þar sem hann var sakaður um ofbeldi vegna hluta sem hann sagði í tíma sem stjörnuspekingur. Gísli og Elín Kristjánsdóttir, konan hans, sem eru nýjustu gestirnir í podcasti Sölva Tryggvasonar, segjast vilja stíga fram opinberlega og segja sína sögu til að opna á umræðu um hvað sé eðlilegt og hvað ekki þegar kemur að opinberri umfjöllun og hve lengi afleiðingar eigi að vara. Gísli segir allt hafa breyst á afmælisdaginn sinn 5. maí árið 2022:

„Þetta er þáttur þar sem er verið að tala um ofbeldi í andlega heiminum á Íslandi og talað við fólk sem hefur lent illa í andlegum ofbeldismönnum. Ég er tekinn fyrir þarna ásamt öðrum sem voru sakaðir um alvarlegt ofbeldi, en ég var sá eini sem var nafngreindur og myndbirtur í þættinum. Það kom út stikla úr þættinum á afmælisdaginn minn, 5. maí, og þá vissi ég hvað var í vændum. Við Elín vorum gjörsamlega slegin þegar við sáum svo þáttinn þegar hann fór í loftið. Þar var birt myndband af mér í stjörnulestri þar sem ég sannarlega sagði hluti sem ég hefði ekki átt að segja. En það sem var sjokkerandi fyrir mig var að mér var blandað inn í umfjöllun þar sem var verið að saka menn um gróft kynferðisofbeldi.“

Tekur fulla ábyrgð

Umræddur þáttur var fréttaskýringaþáttur Kompáss um ofbeldi í andlega heiminum á Íslandi, þar sem Gísli var bæði nafngreindur og myndbirtur í þætti innan um aðrar sögur sem voru af talsvert alvarlegri toga. Því má segja að hann hafi á ákveðinn hátt orðið andlit fyrir hluti sem hann hafði ekkert með að gera. Gísli gerðist sekur um að segja óviðurkvæmilega hluti þegar hann hitti vinkonuhóp í persónulegum lestri í stjörnuspeki. Í kjölfar þáttarins missti hann vinnuna og mannorðið á einum degi og á þeim fjórum árum sem eru liðin hefur honum ítrekað verið sagt upp störfum eingöngu út af þættinum og umfjölluninni sem enn er á netinu. Gísli segist fyrstur allra gangast við því að hann hafi gert hluti sem hafi ekki verið í lagi, en veltir því upp hvort afleiðingarnar séu ekki komnar úr öllu sem eðlilegt gæti talist:

„Ég vil taka fulla ábyrgð á þessari umfjöllun og vil sannarlega hreinsa upp þá hegðun sem ég þurfti að betrumbæta hjá sjálfum mér. Á þessum tíma fannst mér töff að triggera fólk og ég sé það núna að það hefur örugglega bara verið mjög óþægilegt. Það sem kom fram í þættinum var þriggja tíma hittingur sem var tekinn upp á myndband með þessum vinkonuhópi. Ég var að fara inn í kenningar Carls Jung um skuggana okkar og mikilvægi þess að horfa á alla partana innra með okkur. Ekki að það þýði að við séum endilega þessir partar, en að þeir búi innra með okkur og til þess að laga þá verðum við að viðurkenna þá og horfast í augu við þá. Ég tala þarna um að það búi síkópati innra með mér og að ég geti skilið Hitler og fleiri hluti sem ég hefði ekki átt að segja. Sumt af því sem ég sagði var alls ekki gott og ég var bara að tala með rassgatinu. Ég er greindur með bipolar (geðhvörf) og fór í mína fyrstu maníu árið 2014. Ég hafði aldrei tekið fulla ábyrgð á því þegar ég fór í maníu, en þessi umfjöllun sendi mig í þá vegferð að þurfa að skoða sjálfan mig betur og taka ábyrgð á hlutum sem ég hafði ekki horfst í augu við. Ég hef ekki sagt frá bipolar-greiningunni opinberlega en eftir á er auðvelt að sjá að ég hefði þurft að taka meiri ábyrgð á mér. Ef þú ert að glíma við geðhvörf verður þú að taka fulla ábyrgð á því, ekki síst þegar þú ert að vinna með fólki á þann hátt sem ég var að gera.“

Erfitt að skoða kommentakerfin

Gísli og Elín, konan hans, áttu mjög ungt barn þegar stormurinn skall á og eðlilega hefur allt þetta ferli haft gríðarleg áhrif á fjölskylduna og allt þeirra líf undanfarin fjögur ár. Elín segir þetta tímabil hafa reynt gríðarlega mikið á þau á allan hátt:

„Þetta var náttúrulega bara hræðilegt. Mér fannst ég vera í spennutreyju þegar ég horfði upp á það að það var verið að taka manninn minn af lífi hvað varðar mannorð hans og allir með hugmyndir og skoðanir á honum, líka fólk sem þekkir hann ekki neitt. Fólk fór að efast um hvers konar maður hann var og mér fannst fólk nánast draga orð mín í efa þegar ég reyndi að verja hann og segja fólki hvaða mann hann hefur að geyma. Nánast eins og ég væri bara rosalega meðvirk og föst í einhverju sambandi sem ég ætti ekki að vera í. Það var erfitt að skoða kommentakerfin þegar ég sá fólk skrifa um mig eins og ég væri eitthvað grey að vera í sambandi með honum. Ég upplifði í mjög langan tíma að ég mætti eiginlega ekki vera konan hans og vera stolt af því. Ég sagði til dæmis engum á vinnustaðnum mínum frá því hver maðurinn minn væri. Í desember í fyrra endaði ég bara í veikindaleyfi eftir að hafa bælt allar þessar tilfinningar í svona langan tíma. Ég var auðvitað mjög reið út í Gísla fyrir að hafa komið okkur í þessa stöðu með því að vera of hispurslaus í því hvernig hann talaði. En það breytti því ekki hvað mér fannst um hann sem manneskju. Síðan þetta gerðist erum við búin að gifta okkur og eignast annað barn og mér finnst ég bara mjög heppin að eiga hann sem mann og strákarnir okkar eru virkilega heppnir að eiga hann sem pabba.“

Endaði með að fá taugaáfall

Afleiðingarnar fyrir Gísla og fjölskylduna hafa nú varað í fjögur ár og verið margvíslegar. Honum hefur nú alls sex sinnum verið sagt upp störfum eingöngu út af umfjölluninni fyrir 4 árum:

„Ég endaði á því að fá taugaáfall og missti alveg fæturna, en sem betur fer fékk ég góða aðstoð í gegnum Virk og fékk endurhæfingarlífeyri. En svo þegar ég var orðinn betri fékk ég starf í grunnskóla sem afleysingarkennari og þar voru allir mjög ánægðir með mig. En um leið og það kom upp umræða um þessa umfjöllun var mér strax sagt upp. Svo hef ég ítrekað lent í því sama. Ég fór að þjálfa frjálsar íþróttir og þar varð allt vitlaust yfir því að ég væri að þjálfa börn. Svo þegar það eru liðin 3 ár frá þessu fer ég að starfa sem nuddari á sjúkraþjálfunarstöð og hélt að þetta væri búið, þó að ég væri enn með þennan ótta innra með mér að þetta kæmi alltaf upp aftur, sem það gerði. Síðasta tilvikið var að ég þvingaði mig í að þora að sækja um á leikskóla, en sex dögum eftir að ég byrjaði var ég kallaður inn á skrifstofu og sagt upp störfum. Þetta var í sjötta skipti sem mér var sagt upp störfum á undanförnum árum og þarna krössuðum við Elín bara bæði. Þetta var í lok síðasta árs og nærri fjögur ár liðin frá umfjölluninni.“

Gjöf að vera hent ofan í pytt

Gísli segir þrátt fyrir allt þetta að hann hafi séð gjafir í þessu ferli og sú stærsta sé að horfast í augu við sjálfan sig og ná að bæta hluti í sínu fari sem annars hefðu kannski haldið áfram:

„Gjöfin í þessu var að mér var hent ofan í pytt þar sem ég varð bara að horfast í augu við sjálfan mig á allan hátt. Einhverjir partar sem ég hefði kannski ekki þorað að mæta, en þarna var mér bara hent ofan í pyttinn og hleranum læst. Ég endaði á að fá taugaáfall og allan pakkann. En það sem var fallegt í því var að ég fékk tækifæri til að skoða hvað ég var með rosalega brotna sjálfsmynd og það var margt sem ég þurfti að skoða í eigin fari. Ég var með mikla hetju-,,complexa”, eftir að hafa verið lagður í einelti sem barn. Þannig að mér fannst ég verða að vera mjög stórfenglegur til þess að vera einhvers virði. Þetta virði fann ég í gegnum stjörnuspekina og það hægt og rólega steig mér til höfuðs. Eftir að þessi þáttur kom út neyddist ég til þess að horfast í augu við allar hliðar af sjálfum mér og ég er þakklátur fyrir það.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Gísla og Elínu og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is 

 

#hefur #kjölfar #misst #sex #störf


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/fokus/2026/5/26/hefur-misst-sex-storf-kjolfar-fjolmidlaumfjollunar-fyrir-4-arum-sidan/

📰 Aðrar fréttir

Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
📅 12.10.2026 👁️ 1
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
Ein þekktasta bók hryllingssagnameistarans Stephen King er frumraun hans, Carrie. Það var þó heljarinnar bras að skrifa bókina og koma henni út. Tabit...
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. Í þæt...
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
📅 12.10.2026 👁️ 1
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
The 51-year-old actor and comedian denies charges of rape and sexual assault against six women.
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
📅 12.10.2026 👁️ 1
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri he...
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka 
lækna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna - Vísir
Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks s...
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
📅 12.10.2026 👁️ 1
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
Alríkisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði í gær að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans yrðu að hætta birtingum á auglýsingum með...
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökum sem stóðu fyrir mótmælum gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í gær. Fjöldi fólks kom saman til að...
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægi...
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
📅 12.10.2026 👁️ 1
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
Maður sem áður var ákærður fyrir að stinga tvo unga drengi í Providence í Bandaríkjunum var í júlí talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu og fék...
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
📅 12.10.2026 👁️ 1
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
Residents and holidaymakers across the Canary Islands face changes to supermarket, shopping centre and public service opening hours today, Monday 12th...
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ Kostn­að­ur vegna við­gerða og við­halds á tveim­ur grunn­skól­um í Reykja­nes­bæ er kom­inn í tíu mi...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
📅 12.10.2026 👁️ 2
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
The Canary Islands Government has officially lifted the rain pre-alert affecting Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote, Fuerteventura and La Graciosa, fol...
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
📅 12.10.2026 👁️ 2
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyn...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
📅 12.10.2026 👁️ 2
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
A nationwide general strike has been called in Spain, including the Canary Islands for Wednesday 11th November, with the country's housing crisis at t...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 3
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 3
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
📅 12.10.2026 👁️ 2
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, investigation finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 3
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 3
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 3
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
📅 11.10.2026 👁️ 2
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
📅 11.10.2026 👁️ 2
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
Close to record-breaking warm nights are possible this week as warmer air heads for the UK.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 4
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 4
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...