Maður var í síðustu viku handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum og vörslu á talsverðu magni fíkniefna.
Í dagbók lögreglu kom fram að athugasemd hefði verið gerð við rekstur snyrtistofu sem virtist ekki starfa samkvæmt lögum um slíkan rekstur og að það hefði verið afleiðing af handtöku mannsins.
„Það kemur í ljós að hann var með snyrtistofu í heimahúsi sem var ekki með rekstrarleyfi. Við erum enn að skoða þetta,“ segir Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi í Kópavogi, innt eftir þessu máli. Ráðist var í húsleit á heimili mannsins eftir handtökuna. Hann hefur síðan verið leystur úr haldi.
Sigrún segir að næstu skref séu að taka skýrslu af eiganda snyrtistofunnar, sem er annar en sá sem var handtekinn. Þá verði haft samráð við viðeigandi stofnanir. Lögregla hefur til skoðunar hvort einhver hafi starfað sem snyrtifræðingur án starfsleyfis.
Sigrún segir að ekki sé algengt að snyrtistofur séu í heimahúsum.
Ólíklegt að snyrtistofan tengist hugsanlegri fíkniefnasölu
Málið er að hennar sögn nokkuð yfirgripsmikið og ljóst að rannsókn þess verði tímafrek enda þurfi að fara yfir fjármál og gögn málsins með þar til gerðum stofnunum, svo sem skattinum og heilbrigðiseftirlitinu.
Sá handtekni hafði talsvert magn fíkniefna í fórum sínum og var grunaður um peningaþvætti. Lögregla hefur til skoðunar hvort stunduð var fíkniefnasala.
Er talið að fíkniefnasala tengist snyrtistofunni?
„Mér finnst það ólíklegt en það er eitthvað sem við þurfum að skoða,“ segir Sigrún.
Það telst til brota á iðnaðarlögum að reka snyrtistofu án starfsleyfis eða að starfa sem snyrtifræðingur án leyfis.
Að sögn Sigrúnar er ekki starfsemi á snyrtistofunni.