Hafa fengið hærri reikninga - MBL.IS
📅 2026-06-12 11:00:00
👁️ 0 lesið
Dæmi eru um að sumarhúsaeigendur og íbúar í Dalabyggð hafi fengið hærri rafmagnsreikninga en áður eftir að 3G-farsímakerfið var aflagt um áramót. Samkvæmt upplýsingum frá Rarik hafa ekki komið upp slík tilvik annars staðar á landinu.
Morgunblaðið greindi frá því fyrr í vikunni að íbúar í Dalabyggð hefðu kvartað undan því að símasamband hefði versnað eftir að 3G-kerfinu var lokað, þrátt fyrir fyrirheit um annað.
„Við getum staðfest að í takmörkuðum fjölda tilvika hefur þurft að áætla notkun viðskiptavina vegna lokunar eldri 2G/3G-fjarskiptakerfa. Þetta á við um mæla í Dölunum þar sem eldri mæla- og fjarskiptabúnaður var kominn að lokum líftíma og samband rofnaði við kerfi okkar áður en lokið var við útskipti á búnaði.
Okkur er ekki kunnugt um önnur tilvik þar sem þessi breyting hefur þegar haft áhrif á reikningagerð viðskiptavina með sama hætti og í Dölunum,“ segir í svari Rarik við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Þar segir jafnframt að um sé að ræða um það bil 160 rafmagnsmæla. „Frá því í desember, þegar slökkt var á 3G-sambandi, hefur notkun hjá þessum viðskiptavinum verið áætluð út frá fyrri ársnotkun hvers og eins, í stað þess að byggja á raunmældri notkun eins og áður. Slík áætlun getur í einstaka tilvikum leitt til þess að reikningar verði hærri eða lægri en raunnotkun gefur tilefni til á tímabilinu. Þegar skipt er um mæli fæst raunstaða gamla mælisins og notkunin er þá leiðrétt.
Viðskiptavinir sem þetta varðaði voru upplýstir sérstaklega með bréfi í janúar um að áætla þyrfti notkun næstu mánuði vegna þessara breytinga.“
Búið er að setja upp nýja fjarmæla hjá langflestum viðskiptavinum Rarik. „Aðeins örfáir mælar eru eftir og unnið er að því að ljúka þeim skiptum. Eftir mælaskiptin fer þetta í sama horf og áður, þar sem viðskiptavinir fá uppgjör byggt á raunnotkun í lok hvers mánaðar. Áætlun fyrri mánaða leiðréttist við mælaskiptin.
Rarik leggur áherslu á að viðskiptavinir greiði að lokum fyrir rétta raunnotkun. Þar sem áætlanir hafa verið notaðar verða reikningar leiðréttir þegar raunstaða liggur fyrir.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.