Tónlistarmaðurinn og áhrifavaldurinn Aron Kristinn, sem var áður meðlimur hljómsveitarinnar ClubDub en rekur nú fataverslun og kemur að öðrum tónlistartengdum rekstri, birti færslu í Facebook-hverfishópnum Vesturbærinn.
Þar greinir hann frá því að lundapysja hafi fundist ein og yfirgefin þar sem Dunhagi og Hjarðarhagi mætast. Svo virðist sem hann og annar pysjubjörgunarmaður hafi bjargað henni og í færslunni segir að þeir ætli að sleppa henni út á sjó í dagsbirtunni á morgun.
„Kannski eru fleiri svona hjálparlaus krútt á vappi í Vesturbænum, endilega hafið augun opin,“ segir einnig í færslunni.