Eigendur Plöntunnar bístró í Norræna húsinu hafa tekið þá ákvörðun að loka kaffi- og veitingastaðnum í lok júlí sökum erfiðra rekstraraðstæðna.
Kaffihúsið, þar sem lögð var áhersla á mat samhliða kaffi og bakkelsi, er þannig það fjórða í höfuðborginni sem leggur upp laupana á rétt rúmlega tveggja mánaða tímabili, en í maí tilkynntu rekstraraðilar Kaffitárs að síðustu tveimur kaffihúsum keðjunnar yrði lokað og í síðustu viku kvaddi eitt kaffihúsa Te og Kaffi Suðurlandsbrautina.
Í tilkynningu á samfélagsmiðlum segja þau Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Bernódus Óli Einarsson að „dæmið sé ekki alveg að ganga upp“ þó að gengið hafi vel á eiginlega alla vegu nema þann fjárhagslega.
„Þetta er bara búið að vera erfitt rekstrarumhverfi og við höfum ekki alveg náð upp þeirri veltu sem hefði þurft til þess að þetta gangi upp,“ segir Bernódus í samtali við mbl.is.
„En gestir hafa verið mjög ánægðir, við höfum fundið fyrir miklu þakklæti og viðbrögðin hafa alltaf verið falleg.“
Margir þættir spila inn í
Hugmyndin að Plöntunni kviknaði árið 2021, og árið 2022 stofnuðu Hrafnhildur og Bernódus, alla jafna kallaður Benni, kaffihúsið sem halda mun starfsemi áfram á sama stað á horni Njálsgötu og Barónsstígs.
Í febrúar 2025 opnaði síðan bístró-veitingastaður Plöntunnar í Norræna húsinu, sem Hrafnhildur og Benni hafa rekið ásamt Júlíu Sif Liljudóttur í um eitt og hálft ár.
Benni segir ástæðu þess að dæmið hafi ekki gengið upp vera blöndu af mörgum þáttum, sem leitt hafi að lokum til þess að þau ákváðu að hætta rekstri einingarinnar.
„En við ætlum bara að halda sterk áfram á Njálsgötu, þar sem við byrjuðum, og við vonumst til þess að sjá sem flesta sem hafa heimsótt okkur í Norræna húsinu áfram á Njálsgötunni.“
Norræna húsið hefur einnig þakkað Plöntunni fyrir samstarfið á Facebook, og auglýsir nú eftir nýjum samstarfsaðila:
