Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur tilkynnt að hann sé hættur við umdeilda hugmynd sína að selja hlut í keppnum FIFA. Breska ríkisútvarpið greinir frá.
Infantino sagði að það væri ljóst að hugmyndin hefði skapað sundrung sem væri ekki til hagsbóta fyrir upphaflegu hugmyndina. Þar af leiðandi verði þessum áætlunum ekki fram haldið.
Infantino hafði boðið öllum 211 aðildarsamböndunum greiðslur upp á 40 milljónir bandaríkjadala ef þau samþykktu þessa hugmynd.
Fyrirætlanir Infantino og FIFA voru gagnrýndar harðlega. Bæði Knattspyrnusamband Mið- og Norður-Ameríku sem og asíska knattspyrnusambandið sögðu að aðildarsambönd þeirra myndu kjósa gegn tillögunni.
Þá samþykktu öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, að sniðganga HM í fótbolta ef áform Infantinos næðu fram að ganga.