Um 800 skógareldar geisa í Kanada og meira en hundrað þeirra teljast vera stjórnlausir. Um 1,9 milljónir hektara lands hafa brunnið, álíka stórt svæði og Slóvenía.
Skógareldarnir ógna ekki einungis lífi á jörðu og gróðurlendi heldur ógnar mengun frá þeim heilsu fjölda manns í Kanada og Bandaríkjunum.
Í gær mældust minnst loftgæði í Toronto af öllum stórborgum heimsins og íbúum var ráðlagt að halda sig inni. Ástandið var svipað í Montreal og fleiri borgum í Kanada. Reykurinn hefur borist til Pennsylvaníu, New York og fleiri ríkja í Norðaustur-Bandaríkjunum.
Zohran Mamdani, borgarstjóri í New York, ráðlagði borgarbúum að forðast óþarfa útiveru og nýta sér kælistöðvar víða um borgina.