Veður verður áfram með svipuðum hætti næstu daga og hefur verið með ríkjandi vestlæri átt og dálítilli vætu af og til vestanlands, en björtu veðri fyrir austan. Hiti víðast 10 til 15 stig en allt að 20 á Austurlandi, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Öflug hæð suður af landinu mun ekki haggast að ráði næstu daga og því verður svipað veður áfram, þ.e. ríkjandi vestlæg átt með dálitla vætu af og til vestanlands og hita yfirleitt á bilinu 10 til 15 stig, en lengst af bjart veður fyrir austan þar sem hiti fer víða vel yfir 20 stig.
Hæðin sér um að dæla til okkar mjög röku og hlýju lofti sem á rætur sínar að rekja langt suður í hafi. Það má þó nefna að það bætir heldur í vind á morgun og hinn.