Á vef Veðurstofunnar segir að rigna fari seinnipartinn vestantil og búast megi við talsverðri úrkomu þar í kvöld.
Í dag megi búast við stífri sunnan- og suðvestanátt upp í allhvassan eða hvassan vind í norðvesturhluta landsins en þar eru gular viðvaranir í gildi.ular viðvaranir eru í gildi fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og miðhálendið í dag og falla úr gildi í nótt. Búist er við þrettán til tuttugu metrum á sekúndu og hviðum í kringum þrjátíu metra á sekúndu við fjöll.
„Vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi.“
Veðurhorfur næstu daga:
Á mánudag:
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s. Rigning eða súld, einkum suðvestan- og vestanlands. Hiti 11 til 22 stig, hlýjast á Austurlandi.
Á þriðjudag:
Sunnan 5-10 og rigning, en úrkomulítið austantil á landinu. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Suðvestlæg átt og dálítil væta, en þurrt og bjart norðaustan- og austanlands. Hiti 12 til 25 stig, hlýjast norðaustantil.
Á fimmtudag:
Vestanátt, skýjað og úrkomulítið, en léttskýjað suðaustanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Suðausturlandi.