Verðtryggingin nýtist fasteignafélögum mjög vel vegna þess að tekjur þeirra eru að fullu verðtryggðar. Það verður mjög erfitt að gera langa leigusamninga án verðtryggingarinnar. Á móti kemur að vextir eru mun hærri hér en annars staðar. Við þurfum að byggja ódýrara húsnæði og í því sambandi eru sóknarfæri í breyttu byggingarformi sem m.a. styttir byggingartíma til muna. Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Guðni Aðalsteinsson: Við njótum góðs af verðtryggingunni – erum með belti og axlabönd