Fasteignafélagið Reitir hefur fram til þessa einbeitt sér að atvinnuhúsnæði en hyggst nú víkka út starfsemina. Einn þáttur þess er að umbreyta atvinnuhúsnæði í íbúðir. Þá horfir félagið til þess að vera með uppbyggingu í sambandi við heilbrigðisþjónustu, þjónustu við aldraða og skóla. Forstjóri Reita sér mikla möguleika fyrir fasteignafélög í innviðauppbyggingu, sem geti létt byrðum af ríkinu. Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Guðni Aðalsteinsson: Fasteignafélögin geta gegnt mikilvægu hlutverki í innviðauppbyggingu