Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri sæmdi Guðjón Friðriksson sagnfræðing og rithöfund, heiðursborgaranafnbót við hátíðlega athöfn í Höfða, í dag.
Guðjón Friðriksson er níundi einstaklingurinn sem gerður er að heiðursborgara Reykjavíkurborgar. Með því að sæma Guðjón Friðriksson heiðursborgaratitli vill Reykjavíkurborg þakka fyrir ómetanlegt framlag hans til sögunnar, menningarinnar
og borgarinnar okkar.
Með útnefningu heiðursborgara er Reykjavíkurborg að viðurkenna og þakka fyrir ómetanlegt framlag einstaklinga sem hafa tekið þátt í að móta og bæta samfélagið með einum eða öðrum hætti.
Kennari, blaðamaður og rithöfundur
Guðjón fæddist og ólst upp í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1965 og BA-prófi í sagnfræði og íslensku frá Háskóla Íslands árið 1970, auk prófs í uppeldis- og kennslufræði 1971. Hann starfaði við kennslu á áttunda áratugnum en sneri sér síðan að blaðamennsku og var blaðamaður á Þjóðviljanum í nær heilan áratug, þar á meðal ritstjóri Sunnudagsblaðs Þjóðviljans. Árið 1985 var hann ráðinn af Reykjavíkurborg sem ritstjóri Sögu Reykjavíkur og sinnti því til ársins 1991. Síðan þá hefur hann verið sjálfstætt starfandi rithöfundur og sagnfræðingur. Afraksturinn er umfangsmikið ævistarf sem spannar bókaútgáfu, greina- og ritgerðaskrif og þáttagerð fyrir útvarp og sjónvarp.
Saga Reykjavíkur gerð aðgengilegri
Guðjón Friðriksson er einn fremsti sagnfræðingur og rithöfundur landsins. Í meira en hálfa öld hefur hann verið áberandi í íslensku menningarlífi, fyrst sem blaðamaður og síðar sem höfundur sagnfræðirita sem hafa dýpkað skilning okkar á sögu Reykjavíkur og íslensku samfélagi. Hann hefur með störfum sínum gert söguna aðgengilega almenningi, byggt brú milli fræðimennsku og daglegs lífs. Fáir ef nokkrir hafa gert meira til að lyfta upp sögulegri sjálfsmynd Reykjavíkur en Guðjón og hin síðari ár hefur hann verið ötull að miðla sögu húsa í Reykjavík á samfélagsmiðlum.
Farsæll ferill
Verk Guðjóns ná yfir vítt svið íslenskrar sögu. Má þar til dæmis nefna tveggja binda Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar og ævisögur Einars Benediktssonar, Jóns Sigurðssonar, Hannesar Hafstein og Halldórs Ásgrímssonar. Þá hefur hann fjallað á einstakan hátt um sögu fjölmiðla á íslandi, samvinnuhreyfinguna, sögu fráveitu og Faxaflóahafna, sögu Rauða krossins á Íslandi og ekki síst sögu barna í Reykjavík. Allt eru þetta verk sem varpa ljósi á þróun íslensks samfélags.
Guðjón hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín og er í hópi verðlaunuðustu fræðihöfunda landsins. Hann hlaut Móðurmálsverðlaun úr Minningarsjóði Björns Jónssonar árið 1985, Menningarverðlaun Visa-Íslands árið 2000 og hefur sjö sinnum verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlotið þau fjórum sinnum. Þá hefur hann hlotið Verðlaun Jóns Sigurðssonar, verið sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu og hlotið Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framúrskarandi starf í þágu íslenskrar tungu. Árið 2025 var hann útnefndur heiðursfélagi í Sagnfræðingafélagi Íslands. Heiða Björg borgarstjóri sagði í lok ræðu sinnar að henni væri heiður að fá að sæma hann nafnbótinni sem hann verðskuldaði svo sannarlega.
Til hamingju Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkurborgar.
Aðrir heiðursborgarar Reykjavíkur:
- séra Bjarni Jónsson 1961
- Kristján Sveinsson augnlæknir 1975
- Vigdís Finnbogadóttir 2010
- Erró 2012
- Yoko Ono 2013
- Friðrik Ólafsson 2015
- Þorgerður Ingólfsdóttir 2018
- Björk Guðmundsdóttir 2024