Guðjón Friðriksson skrifar: Allt í rétta átt – aftur - DV

Guðjón Friðriksson skrifar: Allt í rétta átt – aftur - DV

Guðjón Friðriksson skrifar: Allt í rétta átt – aftur - DV

Töluvert er fjallað um skipulagsmál í Reykjavík þessa dagana. Um það leyti sem ég fæddist árið 1945 bjuggu þrír af hverjum fjórum Reykvíkingum innan Hringbrautar og Snorrabrautar, það er í þeim hluta borgarinnar sem við köllum gamla bæinn núna. Þetta var því mjög þéttbýlt svæði sem stafaði líka af því að fjöldi fólks bjó mun þrengra í híbýlum sínum en nú tíðkast. Fjölmennustu íbúagötur borgarinnar voru Laugavegur og Hverfisgata, um 2300 íbúar í hvorri götu. Einkabílaeign var ekki orðin almenn en almenningssamgöngur mun betri en síðar varð. Þar sem ég ólst upp við Barónsstíg var strætó á 10 mínútna fresti. En vinnustaðir voru líka yfirleitt í göngufæri og matvörubúðir á næsta götuhorni. Pabbi minn gekk til dæmis alltaf til vinnu, fyrst á Laugaveginn og síðar á Skólavörðustíginn. Allt þetta varð til þess að götur borgarinnar iðuðu af mannlífi frá morgni til kvölds. Stærstu vinnustaðirnir voru í kringum gömlu Reykjavíkurhöfn (hafnarverkamenn, frystihús, heildsölur, vélsmiðjur o.s.frv.). Í Kvosinni voru nær allir skemmtistaðir og veitingahús. Bíó og leikhús voru þar og í næsta nágrenni.

Allt þetta fór að breytast með stóraukinni einkabílaeign um og eftir 1960 og þar af leiðandi vaxandi úthverfamenningu. Aðalskipulag Reykjavíkur, sem varð að lögum árið 1967, tók fyrst og fremst mið af þessu. Samkvæmt því átti að ryðja í burt öllum húsum öðru megin við Grettisgötu, einnig Hegningarhúsinu, og planta þar breiðgötu, hún átti síðan að fara áfram niður Amtmannsstíg, yfir Lækjargötu, eftir Kirkjustræti og sameinast loka svipaðri breiðgötu sem átti að fara yfir Grjótaþorp þar sem rífa átti öll gömlu húsin. Einnig átti að breikka Laugaveg og Vesturgötu svo að dæmi séu tekin. Í kjölfarið var farið að rífa hús í stórum stíl þar til öflug húsfriðunarheyfing varð til um og eftir 1970 og hægði mjög á þessari þróun. Í umræddu aðalskipulagi var líka gert ráð fyrir nýjum miðbæ í Kringlunni.

Almenn einkabíleign og uppbygging í úthverfum, svo og í öðrum sveitarfélögum, svo sem Kópavogi og Garðabæ, varð til þess að verslanamiðstöðvar risu upp í þessum hverfum og bæjarfélögum. Smám saman voru dagar kaupmannsins á horninu í gömlu Reykjavík taldir. Við af þeim tóku stórir verslanahringir sem smám saman fóru sjálfir að flytja inn vörur sínar á kostnað gömlu heildsalanna. Margar verslanir sem fram að þessu höfðu verið í Kvosinni eða á Laugavegi fluttu sig inn með allri Suðurlandsbraut, í Ármúla og Síðumúla, Skeifuna og alla leið upp á Ártúnshöfða. Aðrar fóru í Kópavog. Og í stað skemmtistaðanna, sem áður höfðu fyrst og fremst verið í Kvosinni, komu nú nýjir staðir svo sem Hollywood við Ármúla, Klúbburinn við Borgartún, Broadway í Breiðholti og Sigtún við Suðurlandsbraut. Sama máli gegndi um bíóin. Uppbygging í Kringlunni hafði einnig geigvænleg áhrif á verslun í Kvosinni og við Laugaveg.

Hluti af vandamálinu var það að Reykjavík stendur á löngu nesi og gríðarlega mikið flæmi þar sem gamli góði Miðbærinn hefði geta þróast áfram var frátekið fyrir flugvöll.

Árið 1980 skrifaði ég grein sem hét Dauður miðbær. Þar sagði meðal annars:

„Gamli miðbæjarkjarninn í Reykjavík er hægt og hægt að deyja sem lifandi miðstöð borgarinnar. Á kvöldin og um helgar er hann eins og draugabær. Áður fyrr flykktist fólk á Lækjartorg, Austurstræti og Austurvöll í frítímum sínum til að njóta lífsins. Nú loka kaffihúsin, matsölurnar og sjoppur að loknum vinnudegi vegna þess að fólk lætur ekki sjá sig þar. Rúnturinn er alveg úr sögunni. Stefna borgaryfirvalda er að skapa nýjan miðbæ í Kringlumýri en hætt er við að þar verði engin miðborgarstemmning ef marka má svipaðar tilraunir í erlendum borgum …“

Og ennfremur:

„Skemmtilegustu borgir í heimi eru þær sem hafa samþjappaða þjónustukjarna þar sem fólk getur hæglega gengið milli staða. Þar er iðandi líf jafnt á daginn sem köldin. Leiðinlegustu borgirnar eru þær sem hafa engan slíkan eiginlegan kjarna. Hætt er við að Reykjavík sé að færast í hóp slíkra borga ef ekki verður spyrnt við fótum.“

Greininni lýkur með eftirfarandi orðum:

„Tími er kominn til að borgarstjórn fari að móta einhverja heildarstefnu varðandi gamla miðbæinn. Þar hefur allt verið látið reka á reiðanum svo að hann er nú eins og óskapnaður ólíkra stíltegunda og ægir saman gömlu og nýju. Beggja megin Kvosarinnar eru gamlar húsaþyrpingar sem eru að drabbast niður af því að borgaryfirvöld geta ekki gert upp við sig hvort eigi að rífa þær eða ekki. Ef tekin væri upp sú stefna að láta Grjótaþorpið og Þingholtin með sína Bernhöftstorfu njóta sín sem lifandi heildir yrði það til mikils stuðnings gamla góða miðbænum og gæti læknað að einhverju leyti þá dauðasótt sem nú herjar á hann. Reykvíkingar ættu að sjá sóma sinn í því að lyfta honum til aukins vegs og virðingar og tengja fortíð við nútíð á eðlilegan hátt.“

Segja má að þetta hafi smám saman gengið eftir á næstu áratugum (þó að ýmis mistök hafi einnig verið gerð). Grjótaþorpið var friðað, Bernhöftstorfan gerð upp og smám saman tóku einstaklingar og opinberir aðilar að gera upp gömlu niðurníddu húsin svo að það er orðið fátítt að sjá slík hús í gamla bænum. Þá hefur víða verið byggt í göt þar sem komin voru bílastæði, oft með ágætum hætti þó að gagnrýna megi annað. Þetta varð líka til þess að veitingastöðum og kaffihúsum í gamla miðbænum tók að fjölga eftir því sem árin liðu. Einnig voru settar þar niður opinberar stofnanir sem drógu til sín mannfjölda. Má þar nefna Borgarbókasafnið, Listasafn Reykjavíkur og síðast en ekki síst Hörpuna. Verslunin átti frekar undir högg að sækja.

Tvennt hefur gerst, einkum síðasta áratug, sem mjög hefur lyft upp gamla bænum. Annað er þétting byggðar sem hefur leitt af sér fjölgun íbúa þar en hitt er hinn mikli ferðamannastraumur til Íslands. Flestir ferðamenn sem koma til Íslands dvelja eitthvað í Reykjavík og þeir vilja hvergi annars staðar vera en í Miðbænum. Þeir vilja ekki vera í dauðyflislegum úthverfum. Þess vegna hafa nær öll hótel á höfuðborgarsvæðinu verið reist í gömlu borginni eða í næsta nágrenni við hana. Þetta hefur meðal annars leitt til þess að gamli Miðbærinn og Laugavegur og nágrenni eru nú iðandi að mannlífi frá morgni til kvölds, eins og var í eldgamla daga. Gríðarlegur fjöldi veitinga- og kaffihúsa er kominn sem verður til þess að Reykvíkingar, líka þeir sem búa í úthverfum, sækja í stórauknum mæli í gamla bæinn. Og hann er aftur orðinn aðalskemmtanahverfið eins og var í gamla daga. Þess vegna meðal annars vill unga fólkið gjarnan búa þar eða í næsta  nágrenni.

Sjálfur bý ég í stórri blokk við Stakkholt, rétt fyrir ofan Hlemm og hef gert undanfarin rúman áratug. Á þeim tíma hefur þjónusta farið vaxandi í næsta nágrenni í göngufæri við heimili mitt, einkum vegna þéttingar byggðar. Má þar nefna matvöruverslanir og bakarí. Niður á Laugavegi, sem ég geng gjarnan, eru svo ágætar fataverslanir.

Þannig að þetta er allt í rétta átt. Nú vantar bara að auka almenningsssamgöngur til að létta álaginu af helstu bílagötunum.

#allt #friðriksson #guðjón #rétta #skrifar


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/10/gudjon-fridriksson-skrifar-allt-retta-att-aftur/

📰 Aðrar fréttir

Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
📅 30.06.2026 👁️ 0
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglin...
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann...
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við...
Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 0
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 1
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 1
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 1
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 2
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
📅 29.06.2026 👁️ 1
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þa...
Monaco explosion injures three people, French media report
📅 29.06.2026 👁️ 1
Monaco explosion injures three people, French media report
The blast at a residential building was "very likely an attack", Monaco's head of government tells AFP.
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
📅 29.06.2026 👁️ 1
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
The blast was caused by an explosive device which appeared to contain bolts and pellets, the head of Monaco's government said.