Maðurinn sem lést í Stuðlagili á mánudaginn hét Piotr Sójka. Hann var 39 ára gamall Pólverji sem var í ferðalagi á Íslandi. Frá þessu greinir lögreglan á Austurlandi. Tildrög slyssins eru nú til rannsóknar og að sögn lögreglu miðar rannsókninni vel.Kristmundur Stefán Einarsson, lögreglustjóri á Austurlandi, sendir í yfirlýsingu samúðarkveðjur til aðstandenda hins látna: „Hugur okkar er hjá aðstandendum Piotr og er þeim vottuð samúð okkar.“
Greina frá nafni mannsins sem lést í Stuðlagili