Mygla hefur valdið miklu raski á starfsemi ýmissa ríkisstofnana og Háskólans á Akureyri undanfarin ár.
Vorið 2024 greindist mygla í húsnæði Reita – Borgum við Norðurslóð á Akureyri.
Borgir hýstu fjölmargar stofnanir og starfsemi Háskólans á Akureyri. Meðal stofnana inni á Borgum voru Fiskistofa, Náttúruverndarstofnun, Umhverfis- og orkustofnun, Jafnréttisstofa og Náttúrufræðistofa.
Þá höfðu stofnanir á vegum HA einnig aðsetur þar sem og skólinn sjálfur. Þó nokkrar stofnanir eru fluttar út og ætla ekki að snúa aftur. Aðrar hafa enn aðsetur þar en biðja starfsfólk sitt að vinna heima sökum ástandsins.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur Háskólinn greitt leigu allar götur síðan myglan greindist, þrátt fyrir að húsnæðið sé metið óheilnæmt og starfsemin hafi flutt sig. Sömuleiðis hafa stofnanir, sökum fastra leigusamninga til 2029, greitt leigu á nýjum starfsstöðvum og greiða því á tveimur stöðum samtímis.
Fiskistofa fer fram og til baka
Fiskistofa, ásamt fleiri aðilum, fór út frá Borgum í apríl 2024 þegar myglan greindist fyrst og á meðan á framkvæmdum stóð. Eftir að framkvæmdum á vinnustöð þeirra lauk haustið 2024 flutti hún aftur inn og taldi að húsnæðið væri orðið öruggt. Í lok sumars 2025 greindist mygla á nýjan leik og aftur núna í upphafi sumars 2026. Starfsfólk hefur kvartað undan höfuðverk og öðrum líkamlegum einkennum eftir að hafa starfað í húsnæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu hafa sumir starfsmenn þeirra lítið sem ekkert getað unnið á Borgum frá því í apríl 2024 þegar myglan greindist fyrst. Þrátt fyrir það hefur Fiskistofa greitt Reitum leigu sem samsvarar rúmlega 57 milljónum króna frá áramótum 2024. Þá hafa þeir einnig greitt öðru félagi rúmlega sex milljónir króna fyrir leigu frá apríl 2024 til nóvember 2024. Þá mánuði felldu Reitir niður leiguna á Borgum sökum framkvæmdanna.
Geta ekki tjáð sig um einstaka leigusamninga
Reitir hafa ekki viljað gefa upp hverjir hafa greitt þeim leigu, hve háa eða hvenær leigusamningar renna út þegar fréttastofa hefur leitað eftir því. Í skriflegu svari þeirra segir:
„Reitir hafa fylgt ráðleggingum faglegra ráðgjafa í þessu máli og allt skemmt byggingarefni sem vitað er um hefur verið fjarlægt úr húsinu. Við höfum unnið í nánu samstarfi við leigutaka í gegnum þetta ferli og boðið öllum leigutökum upp á tímabundið húsnæði á meðan framkvæmdir hafa staðið yfir.
Ráðist verður í sótthreinsiþrif núna og aftur í lok júlí þegar öllum framkvæmdum er lokið. Í framhaldi af því er gert ráð fyrir sýnatöku eftir um 4–6 mánuði, en þetta tímabil ræðst af ráðleggingum um hvað sé æskilegur tími til þess að bíða til að geta metið hvort aðgerðirnar hafi borið árangur.
Við getum ekki tjáð okkur um einstaka leigutaka og leigusamninga og það nær þá einnig til leiguverðs og gildistíma leigusamninga.“