Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað þeirri kröfu stjórnar Donalds Trump Bandaríkjaforseta að 20 þúsund utankjörfundaratkvæði verði ekki talin í þingkosningunum.
Ríkisstjórnin hafði fyrirskipað yfirvöldum í Kaliforníu að taka atkvæðin út fyrir sviga á þeim grundvelli að kjósendurnir á bak við þau væru mögulega ekki bandarískir ríkisborgarar.
Þess má geta að demókratar eru almennt líklegri til að kjósa utan kjörfundar en repúblikanar.
Úrskurður hæstaréttar berst aðeins degi fyrir kosningarnar sem hefjast á morgun.