Gæðabakstur innkallar nú súkkulaðibitakökur sem fyrirtækið framleiddi og seldi í verslunum Krónunnar og Mini Market. Kökunum var pakkað frá 1. júlí til 10. júlí.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Ákvörðunin er tekin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vegna ómerkts ofnæmisvalds og óþolsvalds (mjólk).
„Vörurnar eru með strikamerki 5690896004098. Um er að ræða innköllun í varúðarsjónarmiði með tilliti til neytendaverndar. Innköllunin á við um pakkningu með Pökkunardegi: 01.07.2026 – 10.07.2026 og Best fyrir: 04.07.26 til 14.7.2026.“

