Heill gámur af kampavíni sem var á leið til landsins hvarf sporlaust í Rotterdam í Hollandi fyrr í sumar. Þar glataði Ölgerðin sumarsendingu sinni af þessum vinsæla freyðandi drykk.
Frá þessu er greint í Morgunblaðinu. Þar segir að ekki liggi annað fyrir en að gámurinn hafi verið tekinn ófrjálsri hendi.
Landinn þarf þó ekki að hafa áhyggjur af kampavínsleysi um verslunarmannahelgina því önnur sending hefur skilað sér til Íslands.
Í gámnum voru nokkrar vel þekktar tegundir kampavíns, svo sem Moët & Chandon, Veuve Clicqout og Dom Perignon.
Egill Sigurðsson, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni, segir í samtali við Morgunblaðið það þekkjast að einstaka kassar eða flöskur hverfi úr sendingum. Afar sjaldgæft sé að heilum gámi sé stolið. Tjónið hlaupi á milljónum.