Nýr meirihluti hefur verið myndaður í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Framsókn og óháðir og Viðreisn gengu í morgun frá samkomulagi um samstarf. Gylfi Ólafsson, oddviti Viðreisnar, verður bæjarstjóri. Kristján Þór Kristjánsson, oddviti Framsóknar og óháðra verður, verður formaður bæjarráðs og Elísabet Samúelsdóttir forseti bæjarstjórnar.
Framsókn vann góðan sigur í kosningunum og fékk 34,3 prósent atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa en hafði tvo áður. Viðreisn bauð fram í fyrsta skipti og fékk 16,0 prósent og einn bæjarfulltrúa. Viðreisn var áður hluti af Ísafjarðarlistanum sem vann meirihluta í bæjarstjórn í kosningunum 2022.
Flokkarnir ætla að ráðast í uppbyggingu og breytingar í skólamálum, lækka skuldir bæjarins og ráðast í aðgerðir til að bæta lífsgæðin fyrir fólk á öllum aldri með bættum innviðum og þjónustu.